Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig

„Óska ég öllum þeim netröllum hér þess að lenda aldrei í þess­ari stöðu“

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig
Þarna mátti litlu muna Mynd: Skjáskot

Munaði litlu að alvar­legur árekstur yrði á íslenskum vegi þegar öku­maður pall­bíls tók áhættu­saman fram­úr­akstur, sam­kvæmt mynd­skeiði sem birt hefur verið í Facebook-hópnum Fávitar í umferð­inni en Mannlíf greindi frá mál­inu í gær.

Mynd­bandið var birt af Ívari Erni Smára­syni og sýnir ferð mót­ar­hjóla­kappans Halldórs Guð­munds­sonar en hann er á mót­or­hjól­inu í mynd­band­inu og er eig­in­kona hans að aka á eftir honum. Þegar líður á upp­tök­una sést rauður pall­bíll koma á móti umferð á meðan hann reynir að taka fram úr fleiri en einni bif­reið. Pall­bíll­inn var með pall­bíl á kerru í eft­ir­dragi þegar atvikið átti sér stað.

Af mynd­skeið­inu að dæma sést að öku­mað­ur­inn er kom­inn yfir á öfugan veg­ar­helm­ing þegar umferð nálg­ast úr gagn­stæðri átt. Á síð­ustu stundu tekst honum að beygja aftur út af veg­inum og forða þannig árekstri. Að því loknu heldur hann för sinni áfram.

Atvikið hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum þar sem margir hafa gagn­rýnt akst­urs­lagið harð­lega og bent á hversu alvar­legar afleið­ingar slíkur fram­úr­akstur geti haft.

Málið er á borði lög­reglu á Norð­ur­landi vestra að sögn Halldórs.

Í athuga­semda­kerfi Mannlífs við frétt­inni í gær skrifar Vil­hjálmur Þor­varð­ar­son og játar að vera öku­mað­ur­inn umdeildi.

„Nú gét ég ekki orða­bund­ist lengur þar sem ég var öku­maður og eig­andi þessa bíls þetta atvik ger­ist við gröf í vestur Húna­vatns­sýslu þar sem er há og laung brekka og sést þar vel út alla Húna­vatns­sýslu fyrir þessa beygju það var ekk­ert öku­tæki sjána­legt þegar ég kem fram á brekku­brun­ina svo ég fór að taka fram úr hús­bíl og einum pikkup með hesta­kerru sem keyrðu frekar rólega á óbrit­inni Línu en þetta tók lengri tíma en ég hefði áætlað svo skyndi­lega birt­ist þetta mót­or­hjól og bíll í tölu­verðri fjar­lægð á eftir þessu hjóli var það rétt af mér að taka framúr við þessar aðstæður nei klár­lega ekki og tek ég það bara á mig það var ekk­ert annað að gera í þess­ari stöðu en að keyra bíl­inn útaf til drepa ekki mann­inn og væri ég alveg til í að ná tali af þessum manni sem var á þessu hjóli ekki til að skamm­ast heldur bara til að ræða málin því það er eng­inn þak­lát­ari en ég að þarna varð ekki slys,“ skrifar Vil­hjálmur.

„Skoðaðu mynd­bandið til enda þar sem mynbandið er klift þar er óbrotin Lína upp alla brekk­una þar sem fram­úr­akstur byrjar laungu fyrir þessa heilu línu og auð­velt að draga álykt­anir af ein­hliða víd­eói en þeyr sem voru fyrir aftan mig og sáu hvað skéði vita það að þetta mót­or­hjól var hvergi sján­legt fyrr en það birt­ist sem minnir okkur alltaf betur á það að þau sjast illa en eins og ég hef sagt áður þá afsaka ég ekki þennan fram­úr­akstur og óska ég öllum þeim netröllum hér þess að lenda aldrei í þess­ari stöðu við getum öll gert mis­tök og lært af þeim þessi sek­úndu­brot að setja bílin útaf björg­uðu lýfí þessa 1 manns en ég er að sjálf­sögðu mál­aður hér upp sem glæpa­maður undir áhrifum fíkni­efna og ég veit ekki hvað og hvað ekk­ert af þessu á við rök að styðj­ast bara raung ákvörðun og meirað­segja þú Eiríkur Barkason getur lent í því aldrei gleyma því,“ skrifar hann í annarri athuga­semd.

„Er fólk algjör­lega stropað í hausnum ég er ekki að reyna að bera mér neinar máls­bætur ég útskýrði bara aðstæður laungu fyrir þessa mynda töku ég gerði mis­tök það er alveg klárt og læri af því en uræðan er komin út í vit­leysu það munu allir læra af þessu svo ein­falt er það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Landið

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Innan við 40 virkir dagar eru til áramóta en enn er óljóst hver mun annast eftirlit með neysluvatni og baðvatni.
Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands