Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Leituðu að fíkniefnum en fundu Picasso

Fjórir einstak­lingar voru leiddir fyrir dómara á föstudag vegna málsins

Créteil
Créteil Mynd: Suaudeau/Wikipedia

Lögregla í Frakk­landi fann málverk eftir spænska lista­manninn Pablo Picasso við húsleit sem framkvæmd var í tengslum við rannsókn á fíkniefna­smygli og fíkniefna­viðskiptum í úthverfi Parísar fyrr í vikunni.

Samkvæmt tilkynningu frá saksóknara­embættinu í Créteil, suðaustur af París, kom málverkið í leitinni þegar rann­sakendur leituðu að sönnunar­gögnum í fíkniefna­máli. Í kjölfarið var einnig hafin rannsókn á meintum þjófnaði og meðferð stolinna muna.

Franska dagblaðið Le Parisien greindi fyrst frá málinu og sagði húsleitina hafa farið fram á mánudag í bænum Champigny-sur-Marne, austan við París. Auk Picasso-verksins fundu lögreglu­menn kannabis­efni, lúxus­fatnað og nokkur þúsund evrur í reiðufé.

Saksóknara­embættið staðfesti að sérfræðingar hefðu sannreynt að um væri að ræða ekta verk eftir Picasso. Ekki hefur þó verið upplýst hvaða verk um ræðir né hvaðan það er talið hafa komið.

Fjórir einstaklingar voru leiddir fyrir dómara á föstudag vegna málsins. Yfirvöld hafa ekki gefið upp frekari upplýsingar um tengsl þeirra við málverkið eða fíkni­efna­rannsóknina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár