Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Villimannslegar veiðar sem eiga sér enga stoð í nútímanum“

Skortur á við­skipta­legum til­gangi

„Villimannslegar veiðar sem eiga sér enga stoð í nútímanum“
Linda Karen Gunn­ars­dóttir, for­maður Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands Mynd: Aðsend

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands (DÍS) mót­mælir harð­lega end­ur­upp­teknum hval­veiðum Hvals hf. og kallar eftir taf­ar­lausri stöðvun þeirra. Sam­bandið lýsir veið­unum sem ómann­úð­legum, til­gangs­lausum og skýru broti á lögum um dýra­vel­ferð.

Fyrsta lang­reyð­urin í tvö ár var dregin að landi í Hval­stöð­inni í Hval­firði í nótt, þegar hval­veiði­bát­ur­inn Hvalur 9 sneri til hafnar með tvö dýr. End­ur­koma hval­veiða hefur mætt harðri and­stöðu Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands (DÍS), sem hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem veið­unum er mót­mælt harð­lega.

Skortur á viðskiptalegum tilgangi

Samtökin benda á að veið­arnar séu með öllu til­gangs­lausar út frá við­skipta­hags­munum. Enn séu til miklar birgðir af hval­kjöti í frysti­geymslum sem eng­inn mark­aður sé fyrir, þrátt fyrir tveggja ára hlé á veiðum. DÍS varpar upp þeirri spurn­ingu hvað raun­veru­lega vaki fyrir Krist­jáni Lofts­syni, aðal­eig­anda Hvals hf., þar sem rekst­ur­inn sé fjár­hags­legt tap­verk­efni. Hvetja sam­tökin fjöl­miðla til að rann­saka hvort póli­tískir hags­munir liggi að baki, svo sem að hafa áhrif á fyr­ir­hug­aða lög­gjöf eða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB-aðild­ar­við­ræður.

Telja veiðarnar brjóta á dýravelferð

Í yfir­lýs­ing­unni er vísað í nið­ur­stöðu fagráðs um vel­ferð dýra frá júní 2023, þar sem fram kom að veiðar á lang­reyðum stæð­ust vart lög og að engin þekkt leið væri til að deyða dýrin á mann­úð­legan hátt. Þá gagn­rýnir DÍS nið­ur­stöðu Umboðs­manns Alþingis og segir óásætt­an­legt að atvinnu­frelsi hval­veiði­fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið metið þýð­ing­ar­meira en lög um vel­ferð dýra.

DÍS styðst jafn­framt við eft­ir­lit Mat­væla­stofn­unar (MAST) frá árunum 2022 og 2023 máli sínu til stuðn­ings. Þar kom fram að:

  • Það tók allt að tvær klukku­stundir að deyða dýr.
  • Skotið var mörgum sprengiskutlum í dýrin vegna slæmrar hittni skytta.
  • Helsærð dýr syntu á brott og hurfu.
  • Ófæddir kálfar fund­ust þegar magi kven­dýra var skor­inn upp.

Skora á stjórnvöld að grípa inn í

Dýra­vernd­ar­sam­bandið lýsir hval­veiðum sem villi­manns­legum og ónauð­syn­legum. Skora sam­tökin opin­ber­lega á íslensk stjórn­völd að binda endi á þessar veiðar hið allra fyrsta og tryggja að lögum um dýra­vel­ferð sé fram­fylgt.

Hér má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

„Fyrsta lang­reyð­urin sem veidd er við Ísland í tvö ár var dregin upp í Hval­stöð­ina í Hval­firði um klukkan fjögur í nótt þegar Hvalur 9 kom í nótt með tvær lang­reyðar að landi.

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands (DÍS) mót­mælir harð­lega þessum veiðum sem eru ómann­úð­legar og með öllu til­gangs­lausar út frá við­skipta­hags­munum Hvals hf og aðal­eig­anda þess Krist­jáns Lofts­sonar. Þrátt fyrir að engar hval­veiðar hafi verið stund­aðar í tvö ár, og þær þar áður verið tak­mark­aðar, eru enn birgðir af hval­kjöti í frysti­geymslum sem eng­inn mark­aður er fyrir.

Stóra spurn­ingin er sú hvað raun­veru­lega vakir fyrir Krist­jáni Lofts­syni úr því að hann tapar aðeins fjár­hags­lega á veið­unum? Er það að hindra lýð­ræð­is­lega kjörin stjórn­völd í því að setja lög á hval­veiðar í haust og/eða að hafa áhrif á þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið seinni­part­inn í ágúst í ljósi þess að Evr­ópu­sam­bandið bannar hval­veiðar? DÍS hvetur fjöl­miðla til að leita svara við þessu.

Fagráð um vel­ferð dýra komst að þeirri nið­ur­stöðu þann 16. júní 2023 að veiðar á lang­reyðum, næst stærstu dýrum jarðar á eftir steypireyðum, stæð­ust vart lög um vel­ferð dýra og að engin þekkt leið væri til að drepa þessi risa­vöxnu spen­dýr á mann­úð­legan hátt. Frelsi Krist­jáns Lofts­sonar til að halda úti þessu úrelta áhuga­máli sínu var í fram­hald­inu, af Umboðs­manni Alþingis, metið þýð­ing­ar­meira en lög um vel­ferð dýra. Við þetta verður ekki unað.

Sýnt hefur verið fram á, með eft­ir­liti MAST árin 2022 og 2023, að hval­veiðar eru eitt aug­ljós­asta brot á lögum um dýra­vel­ferð sem hugs­ast getur. Það tók allt að tvær klukku­stundir að deyða lang­reyði eftir að þremur sprengiskutlum, hver með 4 kg dýnamít­hleðslu, hafði verið skotið í dýrið. Skyttur hittu dýrin illa. Í ein­hverjum til­fellum syntu hel­særð dýr á brott og hurfu eftir að hafa verið skotin marg­sinnis og í öðrum til­vikum birt­ust kálfar þegar magi kven­dýra var skorin upp á plan­inu í Hval­stöð­inni.

Þessu verður ekki lýst öðru­vísi en sem villi­manns­legum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútím­anum. Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands hvetur íslensk stjörn­völd til að binda endi á þessar ónauð­syn­legu og ómann­úð­legu veiðar hið allra fyrsta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð