Alls bárust 24 umsóknir um starf bæjarstjóra Suðurnesjabæjar áður en umsóknarfrestur rann út. Sá sem verður ráðinn í starfið tekur við af Magnúsi Stefánssyni, sem lét af embætti eftir 14 ára starf sem bæjarstjóri. Magnús gegndi fyrst stöðu bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Garði og síðar, frá sameiningu sveitarfélaganna árið 2018, sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar.
Meðal umsækjenda eru þrír fyrrverandi alþingismenn; Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, og Jóhann Friðrik Friðriksson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir