Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stal rúmum tvö þúsundum evrum úr kjallara og sparkaði í lögregluþjón

Fjórum dögum síðar var hún sökuð um að hafa stolið tveimur banka­kortum, hvítu veski, öku­skír­teini, Costco-korti og 10.000 krónum

Stal rúmum tvö þúsundum evrum úr kjallara og sparkaði í lögregluþjón
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um að dæma í mál­inu Mynd: Víkingur

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Askalín Birg­is­dóttur í fjög­urra mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir fjölda brota sem framin voru á árunum 2024 til 2026, þar á meðal ítrekuð þjófn­að­ar­brot, fíkni­efna­laga­brot, hús­brot og brot gegn vald­stjórn­inni.

Málið var rekið á grund­velli tveggja ákæra sem síðar voru sam­ein­aðar. Annars vegar var Askalín ákærð fyrir að hafa sparkað í vinstri fót lög­reglu­manns við skyldu­störf í Reykja­vík 30. maí 2025. Hins vegar laut hin ákæran að röð ann­arra brota sem framin voru á tíma­bil­inu frá októ­ber 2024 til apríl 2026.

Samkvæmt ákæru braust hún 24. októ­ber 2024 inn í kjall­ara­í­búð í Reykja­vík með því að brjóta rúðu og hafði á brott með sér 2.205 evrur. Sama dag fann lög­regla í fórum hennar sam­tals 29 OxyContin-töflur og 43 Rivotril-töflur sem hún hafði ekki heim­ild til að hafa undir höndum.

Fjórum dögum síðar, 28. októ­ber 2024, var hún ákærð fyrir að hafa ruðst í heim­ild­ar­leysi inn í hús­næði í Reykja­vík.

Í apríl 2025 var hún sökuð um að hafa stolið unaðs­vörum úr verslun Elko í Skeif­unni að verð­mæti 112.149 króna.

Á fyrstu dögum árs­ins 2026 héldu brotin áfram sam­kvæmt ákæru. Þann 2. jan­úar stal hún snyrti­vörum úr Krónunni í Skóg­ar­lind að verð­mæti 2.216 króna. Fjórum dögum síðar var hún sökuð um að hafa stolið tveimur banka­kortum, hvítu veski, öku­skír­teini, Costco-korti og 10.000 krónum úr hús­næði Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í Hlíða­smára í Kópavogi. Þá var hún einnig ákærð fyrir að hafa stolið mat­vörum úr Krónunni í Jafn­a­seli í Reykja­vík í apríl 2026.

Askalín ját­aði ský­laust öll brotin og var það meðal þess sem dóm­ur­inn taldi henni til máls­bóta. Dómurinn tók einnig mið af því að nokkur tími var lið­inn frá því sum brot­anna voru framin og að dráttur á rann­sókn og útgáfu ákæru yrði henni ekki kennt um.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn jafn­framt til saka­fer­ils hennar. Hún hafði áður geng­ist undir lög­reglu­stjóra­sátt vegna fíkni­efna­brots árið 2017 og hlotið tvo skil­orðs­bundna fang­els­is­dóma, ann­ars vegar árið 2019 vegna hlut­deildar í hús­broti og grip­deild og hins vegar árið 2022 fyrir þjófnað, fíkni­efna­brot og umferð­ar­laga­brot. Samkvæmt saka­vott­orði hafði hún stað­ist skil­orð í báðum til­vikum.

Refs­ingin var ákveðin fjög­urra mán­aða fang­elsi en fulln­ustu hennar var frestað til tveggja ára gegn því skil­yrði að hún haldi almennt skil­orð á því tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð