Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauks­dóttir tjáir sig um frá­vísun í máli Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Skúli Tómas Gunn­laugs­son Eva úti­lokar ekki skaða­bóta­kröfu Mynd: Víkingur

Eva Hauks­dóttir, dóttir Dönu Jóhanns­dóttur, seg­ist bæði reið og undr­andi eftir að Hér­aðs­dómur Reykja­ness vís­aði í morgun frá máli hér­aðs­sak­sókn­ara gegn Skúla Tómasi Gunn­laugs­syni hjarta­lækni.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“

Skúli Tómas var ákærður fyrir mann­dráp og brot gegn lögum um heil­brigð­is­starfs­menn vegna and­láts Dönu árið 2019, þegar hún var sjúk­lingur í hans umsjá á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Dómurinn taldi hins vegar að lækn­inum hefði þegar verið refsað þegar hann var sviptur lækn­inga­leyfi árið 2021og því væri ekki unnt að reka saka­málið áfram. Skúli fékk starfs­leyfið aftur 2024.

Eva, sem starfar sem lög­maður, segir nið­ur­stöð­una hafa víð­tækar afleið­ingar ef hún verður stað­fest.

„Þetta er nátt­úru­lega mjög skrítið. Ef það er rétt að hér­aðs­dóm­ari leggur þann skiln­ing í ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og dóma að það sé þegar búið að sak­fella mann­inn og refsa honum, þá þýðir það að land­læknir hefur sak­fell­inga­vald og refsi­vald. Og þá er algjör­lega til­gangs­laust að vera að kæra mál til land­læknis því þá gæti það skemmt fyrir, vegna þess að þá eyði­leggur það mögu­leik­ann á að snúa málum til lög­reglu, ef maður heldur að eitt­hvað refsi­vert hafi átt sér stað. Þannig að ef Lands­réttur stað­festir þetta þarf að end­ur­skoða algjör­lega hlut­verk og máls­með­ferð land­læknis.“

Hún segir að með þess­ari túlkun sé í reynd litið svo á að tíma­bundin svipt­ing starfs­leyfis geti komið í stað refs­ingar fyrir alvar­leg brot.

„Það þýðir ein­fald­lega að heil­brigð­is­starfs­fólk fær tíma­bundna starfs­leyf­is­svipt­ingu fyrir það sem venju­legt fólk fær fang­els­is­dóm í allt að 16 ár fyrir. Læknar og heil­brigð­is­starfs­fólk er þá mjög vel verndað af lög­unum, það er rosa­legt.“

Eva gagn­rýnir einnig hvernig kerfið hafi brugð­ist í mál­inu.

„Það sem ger­ist þarna er að fram­kvæmd­ar­valdið, land­læknir, sem stjórn­sýslu­vald, slær á putt­ana á honum en veitir honum síðan fullt starfs­leyfi aftur. Lög­gjaf­inn setur lög til verndar heil­brigð­is­starfs­fólki, segi ég, þó að þetta sé skýrt þannig að þetta sé svo að fólk þori að tala hjá land­lækni, og svo er það dóms­valdið. Auk þess sem læknama­f­ían hefur lýst yfir stuðn­ingi við hann á meðan hann var til rann­sóknar fyrir 11 mann­dráp.“

Í upp­hafi rann­sókn­ar­innar voru ell­efu and­lát til skoð­unar í tengslum við störf Skúla Tómasar á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Síðar fækk­aði þeim í sex og að lokum var hann aðeins ákærður vegna eins and­láts.

Eva segir að fjöl­skyldan kunni að höfða skaða­bóta­mál ef hér­aðs­sak­sókn­ari ákveður að áfrýja ekki frá­vís­un­inni.

„Fyrst það er nið­ur­staða dóm­ara að það sé búið að sak­fella mann­inn og refsa honum, hlýtur það að vera grund­völlur fyrir skaða­bóta­kröfu. Maðurinn hefur þá greini­lega verið dæmdur sekur. Þannig að það hlýtur að vera grund­völlur fyrir skaða­bóta­kröfu, þess vegna á hendur rík­inu. Ef Lands­réttur stað­festir frá­vís­un­ina er ríkið búið að klúðra rosa­lega miklu með því að láta land­lækni rann­saka mál og gefa honum vald til að svipta fólki starfs­leyfi á þessum grund­velli, að það hafi gert eitt­hvað hræði­legt af sér í starfi. Þannig að þá er spurn­ing hvort það sé ekki feit bótakrafa undir rík­inu.“

Aðspurð hvort hún væri reið vegna nið­ur­stöð­unnar svarar Eva ját­andi.

„En það er mest þessi fárán­leika­til­finn­ing, þetta er svo rosa­lega fárán­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ