Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

„Vernd óbreyttra borg­ara og barna verður að vera í algjörum for­gangi óháð aðstæðum“

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Utan­rík­is­ráðu­neytið Skorað er á utan­rík­is­ráðu­neytið að for­dæma aftök­urnar Mynd: Utanríkisráðuneytið

Íranska sam­fé­lagið á Íslandi hefur sent frá sér neyð­ar­kall þar sem íslensk stjórn­völd eru hvött til að for­dæma nýlegar aftökur í Íran og beita sér á alþjóða­vett­vangi til að stöðva frek­ari aftökur ungra mót­mæl­enda.

Í frétta­til­kynn­ingu kemur fram að Erfan Esfandi­ari, 18 ára, og Gol-Mohammad Mohammadi, 23 ára afganskur rík­is­borg­ari, hafi verið teknir af lífi í dag af írönskum stjórn­völdum. Báðir voru hand­teknir í kjöl­far mót­mæla í Isfahan í jan­úar á þessu ári.

Samtökin segja jafn­framt að sterkar vís­bend­ingar séu um að fleiri aftökur séu yfir­vof­andi. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum hafi fangar sem tengj­ast svoköll­uðu „Alikhani-square“-máli verið fluttir í ein­angrun, sem hafi aukið ótta um að fleiri geð­þótta­af­tökur séu í vændum.

Í yfir­lýs­ing­unni eru tíu fangar sagðir í bráðri lífs­hættu. Þar eru nefndir Alireza Sepahi, Abolfazl Sepahi, Ghaem Hosseini, Shervin Bag­her­ian, Amir­hossein Safari, Amir­hossein Maleki, Ali Dashti, Abolfazl Ebrahimi, Alireza Raeisi og Amir­hossein Ebrahimi Analoocheh.

Fordæma einnig árásir á almenna borgara

Samtökin lýsa einnig yfir miklum áhyggjum af öryggi almennra borg­ara í Íran vegna átaka í land­inu og for­dæma árásir á skóla.

Í til­kynn­ing­unni er sér­stak­lega vísað til árásar á skóla í Minab, þar sem 120 skóla­börn voru drepin af banda­ríska hernum, og þess kraf­ist að alþjóða­sam­fé­lagið geri allt sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að sam­bæri­legir atburðir end­ur­taki sig.

„Vernd óbreyttra borg­ara og barna verður að vera í algjörum for­gangi óháð aðstæðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Krefjast viðbragða íslenskra stjórnvalda

Íranska sam­fé­lagið bendir á að Ísland hafi tekið for­ystu innan Sam­ein­uðu þjóð­anna í jan­úar síð­ast­liðnum varð­andi mann­rétt­inda­brot íranskra stjórn­valda.

Af þeim sökum eru íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráðu­neytið hvött til að for­dæma opin­ber­lega nýj­ustu aftök­urnar og yfir­vof­andi aftökur ungra mót­mæl­enda.

Jafn­framt eru stjórn­völd hvött til að beita öllum til­tækum diplómat­ískum leiðum á alþjóða­vett­vangi til að reyna að stöðva aftöku­bylgj­una og verja mann­rétt­indi og líf almennra borg­ara í Íran.

Í til­kynn­ing­unni segir að dauða­refs­ingar séu not­aðar sem tæki til að skapa ótta og þagga niður í frels­is­bar­áttu írönsku þjóð­ar­innar og að þeir sem beri ábyrgð á aftök­unum verði að sæta ábyrgð fyrir dóm­stólum.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni en undir hana skrifar Alireza Fartoumi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum