Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stærsta jarðarför Gaza-borgar haldin innan um rústirnar

Hundrað og tólf ein­stak­lingar jarð­settir, þar af 44 börn.

Stærsta jarðarför Gaza-borgar haldin innan um rústirnar
Frá jarð­ar­för­inni Yfir hund­rað Palest­ínu­menn voru jarð­settir í dag Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Palest­ínu­menn komu saman í dag til að jarð­setja meira en 100 fórn­ar­lömb sem nýlega fund­ust í rústum eftir mann­skæða loft­árás Ísra­els­hers í Gaza-borg árið 2023. Um er að ræða fjöl­menn­ustu jarð­ar­för sem haldin hefur verið á Gaza.

Árásin var gerð 22. nóv­em­ber 2023, aðeins nokkrum vikum eftir að stríðið hófst, þegar íbúða­blokk í Sabra-hverf­inu var jöfnuð við jörðu. Talið er að meira en 300 manns hafi farist í árásinni.

Fljót­lega eftir árás­ina tókst björg­un­ar­fólki að ná um 40 líkum úr rúst­unum með ein­földum verk­færum og berum höndum. Meiri­hluti fórn­ar­lambanna lá þó áfram graf­inn undir húsa­rúst­unum.

Um síð­ustu helgi tókst við­bragðs­að­ilum að grafa upp lík­ams­leifar 112 fórn­ar­lamba, þar á meðal 44 barna, 38 kvenna og sjö fatl­aðra ein­stak­linga, að sögn Almanna­varna á Gaza. Talið er að 157 lík séu enn undir rúst­unum.

„Eini „glæpur“ þess­ara písl­ar­vætta var að þeir ákváðu að vera áfram á heim­ilum sínum í þeirri trú að þau myndu vernda þá,“ sagði Taysir al-Hassayna, sem missti ætt­ingja í árásinni, í sam­tali við Associated Press.

Hann sagði að um hina látnu sem enn hefðu ekki fund­ist væri „eins og lík­amar þeirra hefðu gufað upp spor­laust.“

Vopnahlé hefur gert leitina mögulega

Það er fyrst núna, tæpum tveimur árum síðar, sem unnt hefur verið að hefja mark­vissa leit að fólki sem lést á fyrstu mán­uðum stríðs­ins. Viðkvæmt vopna­hlé, sem tók gildi í októ­ber, hefur gert björg­un­ar­sveitum kleift að kom­ast að eyðilögðum svæðum þar sem áður var ómögu­legt að vinna.

Samkvæmt heil­brigð­is­yf­ir­völdum á Gaza hafa yfir 73.377 Palest­ínu­menn fallið í hern­að­ar­að­gerðum Ísraels frá upp­hafi stríðs­ins, þar á meðal fleiri en þús­und manns frá því að hið svo­kall­aða vopna­hlé tók gildi.

Yfir­maður skrán­ing­ar­deildar heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á Gaza, Zaher al-Waheidi, sagði að aðstand­endur hefðu til­kynnt um að minnsta kosti 7.400 ein­stak­linga sem enn væru taldir liggja undir rústum. Hann telur raun­veru­legan fjölda vera mun hærri þar sem í sumum til­vikum hafi heilar fjöl­skyldur farist og eng­inn verið eftir til að til­kynna um saknað fólk.

Hundruð syrgjenda við útförina

Fórn­ar­lömbin sem voru jarð­sett í dag til­heyrðu að mestu Hassayna- og Abu Sharia-fjöl­skyld­unum og voru mörg þeirra náskyld.

Lík­ams­leif­arnar voru lagðar í röðum, vafðar palest­ínskum fánum. Á mörgum þeirra voru ljós­myndir og blóma­blöðum hafði verið dreift yfir svæðið.

Hundruð syrgj­enda tóku þátt í útfar­ar­bænum, sumir stóðu ofan á rúst­unum í nágrenn­inu. Að athöfn lok­inni voru líkin borin á börum um eyði­lagðar götur og jarð­sett í kirkju­garði skammt frá.

Gaza enn í rústum

Þrátt fyrir vopna­hléið hefur ástandið á Gaza lítið batnað. Heil­brigð­is­yf­ir­völd segja að 1.252 manns hafi látið lífið frá því að vopna­hléið tók gildi og bæði Ísrael og Hamas saka hvort annað um að brjóta sam­komu­lagið en dag­lega ber­ast fréttir af sprengju­árásum Ísra­els­hers á Gaza.

Meiri­hluti um tveggja millj­óna íbúa Gaza hefur verið hrak­inn frá heim­ilum sínum og býr nú víða í tjalda­búðum þar sem þrengsli, mein­dýr og smit­sjúk­dómar hafa orðið að vax­andi vanda­máli.

Viðræður um næstu skref í frið­ar­ferl­inu hafa að mestu stöðvast. Hamas hefur ekki afvopn­ast þrátt fyrir fyrri sam­komu­lög og Ísra­els­her hefur enn ekki dregið sig út af stórum hluta Gaza-svæð­is­ins.

Á mánu­dag fund­aði Nikolay Mladenov, sem fer fyrir frið­ar­nefnd sem hefur umsjón með umbreyt­ingu Gaza eftir stríðið, með Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Þar var meðal ann­ars rætt um nýtt sam­komu­lag um afvopnun Hamas.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynnti í síð­ustu viku sam­komu­lag sem felur í sér að Ísrael hætti hern­að­ar­að­gerðum sínum á Gaza og að Hamas og banda­menn sam­tak­anna leggi niður alla vopn­aða starf­semi. Ísrael hefur hins vegar lýst yfir „alvar­legum örygg­is­á­hyggjum“ vegna efnis sam­komu­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta