Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

„Harður vetur framundan“

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands fundar með Selenskí og leið­togum stór­velda Mynd: RAIGO PAJULA / AFP

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tók í gær og í fyrra­dag þátt í mik­il­vægum fjar­fundum með Volodó­mír Selenskí Úkra­ínu­for­seta og leið­togum helstu stuðn­ings­ríkja Úkraínu. Tilefni fund­anna var að sýna sam­stöðu í verki þegar Úkra­ínu­menn fagna því að 35 ár eru liðin frá end­ur­reisn sjálf­stæðis lands­ins.

Staða mála í inn­rás­ar­stríði Rússa í Úkraínu var rædd í þaula á trún­að­ar­fundum leið­tog­anna. Sjónum var einkum beint að helstu áskor­unum við að verja Úkraínu gegn linnu­lausum skot­flauga­árásum Rússa. Þá var rætt um þörf­ina á að herða enn á þrýst­ingi og refsi­að­gerðum gagn­vart Rúss­lands­stjórn svo unnt verði að knýja fram rétt­látan frið. Leið­togar Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna (NB8) und­ir­strik­uðu ein­dreg­inn stuðn­ing sinn við varn­ar­bar­áttu Úkraínu í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu.

Fordæma grimmilegar árásir

„Rússar halda áfram að valda hrika­legri eyði­legg­ingu í inn­rás­ar­stríði sínu gegn Úkraínu. Við for­dæmum Rúss­lands­stjórn harð­lega fyrir grimmi­legar árásir á almenna borg­ara og borg­ara­leg skot­mörk og áréttum sam­stöðu okkar og stuðn­ing við Úkraínu,“ segir for­sæt­is­ráð­herra á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Hún varar við því að ástandið fari versn­andi þegar haustar. „Það er harður vetur framundan. Staðan er ein­fald­lega þannig að stuðn­ings­ríkjum Úkraínu, austan hafs og vestan, ber að gera allt sitt til að mæta varn­ar­þörfum Úkraínu og að styðja við Úkra­ínu­menn með því að leita allra leiða til að tryggja orku­ör­yggi í land­inu.“

Í yfir­lýs­ingu leið­tog­anna með Úkra­ínu­for­seta kemur fram að NB8-ríkin muni standa með Úkraínu svo lengi sem þörf krefur. Árásir Rússa á almenna borg­ara og mik­il­væga inn­viði eru harð­lega for­dæmdar og lýst er yfir stuðn­ingi við enn frek­ari og hertar þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi.

Samstilla loftvarnir fyrir veturinn

For­sæt­is­ráð­herra tók einnig þátt í víð­tæk­ari fjar­fundi leið­toga ríkja­hóps til stuðn­ings Úkraínu. Sá fundur fór fram undir stjórn Sir Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta og Olaf Scholz, sam­bandskansl­ara Þýska­lands.

Á fund­inum gaf Úkra­ínu­for­seti starfs­systk­inum sínum raunsanna og alvar­lega lýs­ingu á stöð­unni á víg­vell­inum. Mikil áhersla var lögð á að nýta vel næstu vikur til að und­ir­búa Úkra­ínu­menn og styrkja loft­varnir lands­ins gegn harðn­andi árásum Rússa áður en vet­ur­inn gengur í garð. Leið­togar á þriðja tug ríkja tóku þátt í fund­inum og ítrek­uðu skuld­bind­ingar sínar gagn­vart öryggi Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum