Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Inga búin að skrifa undir símabannið

„Börnin okkar eiga rétt á því að skól­inn sé staður þar sem þau geta ein­beitt sér“

Inga búin að skrifa undir símabannið
Inga Sæland Er mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra, und­ir­rit­aði í dag reglu­gerð um notkun síma og snjall­tækja á skóla­tíma í grunn­skólum og á frí­stunda­heim­ilum. Með reglu­gerð­inni eru í fyrsta sinn settar sam­ræmdar reglur um síma­bann í grunn­skólum lands­ins.

Markmið reglu­gerð­ar­innar er að auka náms­frið, efla vellíðan og félags­leg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skóla­brag. Reglu­gerðin kemur í kjöl­far laga­breyt­ingar sem Alþingi sam­þykkti fyrr á árinu.

„Börnin okkar eiga rétt á því að skól­inn sé staður þar sem þau geta ein­beitt sér, talað saman, leikið sér og notið sam­veru án stöðugs áreitis frá sím­anum,“ segir Inga. Hún segir síma­bann ekki snú­ast um að snúa baki við tækn­inni heldur að setja vel­ferð barna í fyrsta sæti.

Samkvæmt reglu­gerð­inni verður notkun síma og snjall­tækja, sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frí­stunda­heim­ilis, óheimil á skóla­tíma. Tækin skulu ekki vera aðgengi­leg nem­endum og verða geymd sam­kvæmt fyr­ir­komu­lagi sem hver skóli eða frí­stunda­heim­ili ákveður.

Regl­urnar taka til alls skóla­tím­ans, þar á meðal frí­mín­útna, mat­ar­hléa, vett­vangs­ferða og ann­arra ferða á vegum skól­ans. Þær ná einnig til frí­stunda­heim­ila og tóm­stunda- og félags­starfs sem telst hluti af dag­legu skóla­starfi.

Und­an­þágur verða þó heim­ilar þegar notkun tækis er nauð­syn­leg vegna heilsu­fars, fötl­unar, sér­þarfa eða náms­þarfa nem­enda. Þá verður áfram heim­ilt að nota síma og snjall­tæki í eigu eða umsjá skóla þegar það þjónar kennslu­fræði­legum til­gangi.

Skóla­stjórar bera ábyrgð á inn­leið­ingu regln­anna í grunn­skólum og for­stöðu­menn frí­stunda­heim­ila á sínum vett­vangi. Nemendur skulu fá tæki­færi til að taka þátt í inn­leið­ing­unni og taka skal til­lit til sjón­ar­miða þeirra eftir aldri og þroska.

Reglu­gerðin verður birt í Stjórn­ar­tíð­indum á næstu dögum og öðl­ast þá gildi. Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hyggst jafn­framt gefa út leið­bein­ingar um fram­kvæmd­ina í sam­ráði við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og skóla­sam­fé­lagið.

Ráðu­neytið mun fylgja fram­kvæmd reglu­gerð­ar­innar sér­stak­lega eftir frá 1. jan­úar 2027 og verður hún síðar end­ur­skoðuð með hlið­sjón af reynslu skól­anna og þróun rann­sókna á þessu sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum