Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Forstöðumaður sakar Reykjavíkurborg um vanhugsaðar breytingar

„Á end­anum bitna þessar ákvarð­anir á börnum okkar“

Forstöðumaður sakar Reykjavíkurborg um vanhugsaðar breytingar
„Frí­stunda­mið­stöðvar lagðar af með einu penna­striki“ Mynd: Reykjavíkurborg

Mikil ólga er á vett­vangi frí­stunda­heim­ila og félags­mið­stöðva í Reykja­vík eftir að umfangs­miklar skipu­lags­breyt­ingar voru knúnar í gegn í skjóli borg­ar­ráðs. Haf­steinn Bjarna­son, for­stöðu­maður félags­mið­stöðv­ar­innar 105, segir starf­semi í þágu barna og ung­menna í alvar­legri óvissu og sakar borg­ar­yf­ir­völd um skeyt­ing­ar­leysi og sam­ráðs­leysi.

„Í vik­unni varð starf mitt flókn­ara og erf­ið­ara,“ segir Haf­steinn í upp­hafi færslu sinnar. Hann lýsir því hvernig næsti yfir­maður hans, deild­ar­stjóri, hafi verið sagt upp og boðið annað, illa skil­greint starf, auk þess sem fjár­mála­stjóri hafi verið rek­inn. „Þetta eru tvær mann­eskjur sem að ég leita hvað mest til í mínu starfi, sem for­stöðu­maður félags­mið­stöðvar, eftir aðstoð.“

Frístundamiðstöðvar lagðar af með einu pennastriki

Breyt­ing­arnar fela í sér að frí­stunda­mið­stöðvar borg­ar­innar hafa verið lagðar niður, en Haf­steinn hefur starfað hjá sinni mið­stöð í níu ár. Hann bendir á að þessar mið­stöðvar hafi staðið að gríð­ar­lega mik­il­vægum verk­efnum í þágu almenn­ings. Nefnir hann sér­stak­lega stofnun Flotans – vett­vangs­starfs félags­mið­stöðva, sem sinnir m.a. gæslu­hlut­verki á menn­ing­arnótt, auk Hinsegin félags­mið­stöðv­ar­innar og ann­arra mik­il­vægra verk­efna fyrir börn og ung­linga. Aðrar frí­stunda­mið­stöðvar borg­ar­innar, sem státa af svip­uðum störfum, voru sömu­leiðis lagðar niður og nýtt fyr­ir­komu­lag tekur nú við. Haf­steinn gefur lítið fyrir und­ir­bún­ing­inn:

„Allt var þetta gert að því er virð­ist að illa ígrund­uðu máli og ekki áttað sig á afleið­ingum.“

Óttast lakari þjónustu og meira álag

Haf­steinn ótt­ast að þegar verk­efnum fjár­mála­stjóra og deild­ar­stjóra er dreift á færri hendur muni vinnu­á­lag á for­stöðu­menn og aðra starfs­menn aukast óhóf­lega, sem muni á end­anum bitna á gæðum þjón­ust­unnar. „Hver tekur þeirra bolta? Þeir fara á hendur færri aðila sem verður til þess að ein­stak­lingar falla á milli hluta. Þjónusta verður lak­ari fyrir vikið. Fólk á að hlaupa hraðar og vinna verk­efni sem að er ekki í þeirra starfs­lýs­ingu. For­stöðu­menn eru þar á meðal,“ varar hann við.

Þótt hann skilji að stundum þurfi að end­ur­móta skipu­rit, segir hann vinnu­brögðin algjör­lega óásætt­an­leg. „Ekkert sam­tal var haft við vett­vang­inn. Ekki neitt! Hlutir gerðir í skjóli borg­ar­ráðs sem hefur rétt til að hrinda svona breyt­ingum án umræðu í fram­kvæmd í ljósi ákvæðis um fram­kvæmd­ar­rétt innan sum­ar­tíma­bils.“

„Á bak við tölur er fólk“

Haf­steinn seg­ist blöskra að svona starfs­hættir líð­ist hjá jafn stórum vinnu­stað og Reykja­vík­ur­borg er. Hann minnir stjórn­mála­menn á að mann­legi þátt­ur­inn gleym­ist oft í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum. „Á bak við tölur er fólk. Það að breyta mínus í plús ger­ist ekki á einni nóttu og það þarf að vanda til verka. Hér var það ekki gert.“

Að lokum gagn­rýnir hann mál­flutn­ing póli­tíkusa í fjöl­miðlum sem full­yrða að breyt­ing­arnar muni ekki leiða til þjón­ustu­skerð­ingar.

„Póli­tíkusar sem standa fyrir þessum breyt­ingum voga sér svo að mæta í við­töl og segja að engin þjón­ustu­skerð­ing muni verða vegna þess­ara breyt­inga. Á end­anum bitna þessar ákvarð­anir á börnum okkar og ung­mennum.“

Að sögn Haf­steins er staðan á vett­vangi þung og ein­kenn­ist af óvissu: „Eftir situr svo skelk­aður vett­vangur frí­stunda­heim­ila og félags­mið­stöðva sem að vill ekk­ert nema gott gera fyrir sína þjón­ustu­þega, íbúa Reykja­vík­ur­borgar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð