Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin

Lengja tím­ann en herða skil­yrðin

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin
Nýir umsækj­endur þurfa að standa skil á her­skyldu í Úkraínu Mynd: Víkingur

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt frum­varp dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um útlend­inga sem snúa að tíma­bund­inni vernd vegna fjölda­flótta. Frum­varpið, sem er end­ur­flutt frá síð­asta þingi, á að tryggja að íslensk lög­gjöf sé í takt við fram­kvæmd ann­arra Evr­ópu­ríkja og þá sér­stak­lega á Norð­ur­lönd­unum. Breyt­ing­arnar munu aðeins taka til nýrra umsókna og hafa ekki áhrif á þá sem þegar hafa fengið sam­þykkta vernd hér á landi.

Hámarkstíminn lengdur í sex ár


Í sam­ræmi við ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins frá því í júlí síð­ast­liðnum, þar sem tíma­bundin vernd fyrir fólk á flótta frá Úkraínu var fram­lengd til mars 2028, er lagt til að lög­bund­inn hámarks­tími vernd­ar­innar á Íslandi verði lengdur úr fimm árum í sex. Samkvæmt gild­andi lögum hefur leyfið að hámarki getað gilt í fimm ár frá því það var fyrst veitt.

Á sama tíma er lagt til að sér­stök heim­ild í íslenskum lögum til að veita dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða að lok­inni tíma­bund­inni vernd verði tekin út. Með því vilja stjórn­völd und­ir­strika tíma­bundið eðli vernd­ar­innar og koma í veg fyrir að rétt­ar­staða fólks eftir að vernd lýkur sé ákveðin fyrir fram í lögum.

Hert skilyrði og litið til herskyldu


Samhliða frum­varp­inu hafa leið­bein­ingar um með­ferð nýrra umsókna verið upp­færðar. Tíma­bundin vernd verður almennt ekki veitt ein­stak­lingum sem þegar hafa gilt dval­ar­leyfi í öðru ESB-ríki, Danmörku eða öðru sam­starfs­ríki Schengen.

Þá verður einnig litið til þess við vinnslu nýrra umsókna hvort umsækj­endum hafi verið heim­ilt að yfir­gefa Úkraínu í ljósi skyldna þeirra gagn­vart her lands­ins. Sú breyt­ing er sögð í sam­ræmi við fram­kvæmd í öðrum Schengen-ríkjum, auk þess sem sendi­herra Úkraínu hefur sér­stak­lega óskað eftir þess­ari reglu á fundum með dóms­mála­ráð­herra.

Rúmlega sex þús­und ein­stak­lingar frá Úkraínu hafa fengið tíma­bundna vernd á Íslandi síðan inn­rás­ar­stríð Rúss­lands hófst. Stjórn­völd árétta að breyt­ing­arnar skerði ekki rétt ein­stak­linga til að sækja um alþjóð­lega vernd á almennum grund­velli sam­kvæmt útlend­inga­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð