Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Raddir unga fólksins gegn ofbeldi

Ofbeldi þrífst í þögn­inni

Raddir unga fólksins gegn ofbeldi
Sjón­ar­mið ung­menna í for­grunni á nýju ung­menna­þingi á Norð­ur­landi vestra Mynd: Barnaheill

Á morgun, fimmtu­dag­inn 17. sept­em­ber kl. 09:30, verður haldið fjöl­mennt ung­menna­þing í Fjöl­brauta­skóla Norð­ur­lands vestra. Öllum nem­endum í 10. bekk frá öllum sex grunn­skólum á svæð­inu er boðið að taka þátt.

Sjónum verður beint að mjög mik­il­vægu og alvar­legu mál­efni: ofbeldi í nánum sam­böndum ung­linga.

Þingið er sam­starfs­verk­efni Barna­heilla, SSNV, Far­sæld­ar­ráðs Norð­ur­lands vestra, Öruggara Norð­ur­land vestra og For­varn­ar­á­ætl­unar Norð­ur­lands vestra.

Verk­efnið er byggt á vinnu­stofum sem Barna­heill héldu víða um land á vor­mán­uðum en hefur verið sér­sniðið að aðstæðum á svæð­inu.

Góður stuðn­ingur er við bakið á fram­tak­inu en þingið er styrkt af Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, FISK seafood, Steinull, Borealis datacenter, Byggð­ar­stofnun, N1 á Sauð­ár­króki og Kjör­búð­inni á Blöndu­ósi.

Ofbeldi þrífst í þögninni

Fyr­ir­liggj­andi gögn sýna að kyn­ferð­is­of­beldi gegn ungu fólki og meðal ung­menna er alvar­legt sam­fé­lags­legt vanda­mál. Ljóst er að þörf er á auk­inni umræðu og mark­vissri fræðslu um mörk, sam­þykki, virð­ingu og heil­brigð sam­skipti.

Með beinni þátt­töku unga fólks­ins á svæð­inu á að fá inn­sýn í upp­lifun þeirra og við­horf. Mark­miðið er meðal ann­ars að kanna:

  • Hvort ung­mennin þekki ein­kenni óheil­brigðra sam­banda og ofbeldis.
  • Hvort þau viti hvert skuli leita eftir aðstoð.
  • Hvaða mögu­legu lausnir þau sjá sjálf til að minnka slíkt ofbeldi.

Niðurstöðurnar nýttar í forvarnarstarf

Þátttaka í ung­menna­þingi veitir dýr­mætt tæki­færi fyrir ungt fólk til að tjá skoð­anir sínar og vænt­ingar. Raddir þeirra eru lyk­il­þáttur í því að móta fræðslu og for­varnir sem raun­veru­lega ná til ungs fólks og mæta þörfum þess.

Að þing­inu loknu munu Barna­heill taka saman upp­lýs­ingar og nið­ur­stöður. Far­sæld­ar­ráðið, Öruggara Norð­ur­land vestra og ForNor munu í kjöl­farið nýta þá vinnu til að byggja upp betra for­varn­ar­starf og móta við­brögð við ofbeldi í lífi ung­menna á Norð­ur­landi vestra.

Áhuga­samir geta kynnt sér nið­ur­stöður frá sam­bæri­legum þingum sem haldin voru í öðrum lands­hlutum fyrri hluta árs í skýrslu Barna­heilla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Brotin áttu sér stað á fimm ára tímabili þegar ferill Russells Brand stóð sem hæst á fyrsta áratug aldarinnar.
Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Landið

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Innan við 40 virkir dagar eru til áramóta en enn er óljóst hver mun annast eftirlit með neysluvatni og baðvatni.
Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands