Vegna endurnýjunar umferðarljósa á Háaleitisbraut/Smáagerði verður Háleitisbraut til norðurs lokað rétt norðan við gatnamótin og verður hjáleið um Smáagerði. Háaleitisbraut til suðurs verður haldið opinni, en annarri akreininni verður lokað í einu og ökumenn komast því fram hjá framkvæmdasvæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni
Lokunin hefst yfir klukkan 9.00 á morgun miðvikudaginn 23. september og er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir umferð ökutækja seinnipartinn sama dag.































Athugasemdir