Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Til þyng­ingar var horft til þess að brotin voru kerf­is­bundin

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar
Íslenskir seðlar Mynd: Shutterstock

Sjúkra­þjálf­ar­inn Eiríkur Bergmann Henn hefur verið dæmdur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir fjár­svik gegn Sjúkra­trygg­ingum Íslands (SÍ). Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm­inn 22. sept­em­ber.

Eiríkur var sak­felldur fyrir að hafa á tíma­bil­inu frá 22. mars til 26. sept­em­ber 2023 blekkt starfs­fólk SÍ í 577 skipti til að sam­þykkja greiðslu­kröfur að fjár­hæð sam­tals tæp­lega 3,8 millj­ónir króna.

Samkvæmt ákæru rang­færði Eiríkur upp­lýs­ingar á reikn­ingum, meðal ann­ars dag­setn­ingar með­ferða og gjalda­liði. Þá voru einnig gerðar kröfur vegna með­ferða sem ekki fóru fram.

Málið hófst þegar eft­ir­lits­deild SÍ fékk ábend­ingu um óvenju­margar komur hjá Eiríki miðað við fjölda sjúk­linga hans. Eft­ir­lits­mál var opnað í sept­em­ber 2023 og óskað eftir gögnum um tíma­bók­anir og með­ferðir.

Eiríkur óskaði í kjöl­farið eftir að 577 reikn­ingar yrðu bak­færðir. SÍ komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að alls 854 reikn­ingar væru til­hæfu­lausir og krafði hann um tæp­lega sex millj­óna króna end­ur­greiðslu. Eiríkur greiddi þá fjár­hæð í des­em­ber 2023.

Við rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara var ákærða hins vegar gefið að sök að hafa framið fjár­svik vegna 577 reikn­inga og ofgreiðslna upp á 3,8 millj­ónir króna. Eiríkur hélt því fram að meg­in­hluti með­ferð­anna hefði í raun farið fram áður en samn­ingur hans við SÍ tók gildi og að hann hefði rang­fært dag­setn­ingar þeirra. Hann neit­aði að hafa haft ásetn­ing til að svíkja út fé.

Dómurinn féllst ekki á þær skýr­ingar. Taldi hann hátt­semi Eiríks bera ótví­ræð merki þess að hann hefði ætlað að blekkja starfs­menn SÍ til að greiða fyrir með­ferðir sem stofn­un­inni bar ekki að greiða. Var talið sannað yfir skyn­sam­legan vafa að hann hefði brotið af sér í auðg­un­ar­skyni.

Eiríkur hafði áður verið sviptur starfs­leyfi sínu sem sjúkra­þjálf­ari af land­lækni. Dómurinn hafn­aði þeirri kröfu hans að saka­mál­inu yrði vísað frá vegna banns við end­ur­tek­inni máls­með­ferð og refs­ingu. Starfs­leyf­is­svipt­ingin teld­ist ekki refsi­kennd við­ur­lög heldur stjórn­sýslu­úr­ræði sem ætlað væri að tryggja gæði heil­brigð­is­þjón­ustu og öryggi sjúk­linga.

Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að Eiríkur hafði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi, end­ur­greitt féð og leit­ast við að upp­lýsa málið. Til þyng­ingar var horft til þess að brotin voru kerf­is­bundin og að hann hefði svikið fé úr rík­is­sjóði í starfi sínu.

Eiríkur var dæmdur í sex mán­aða fang­elsi, en fulln­ustu refs­ing­ar­innar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skil­orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ