Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Góðar fréttir fyrir heim­ilin

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Krónan frystir verð á 647 vörum undir vöru­merkj­unum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verð­fryst­ingin tekur gildi 24. sept­em­ber og stendur til og með 31. des­em­ber 2026. Með aðgerð­inni vill Krónan leggja sitt af mörkum til að lækka verð­bólgu, auka stöð­ug­leika og draga úr kostn­að­ar­hækk­unum á heim­ilin. 

Fjölbreyttar nauðsynjavörur

Vörurnar spanna fjöl­breyttar og algengar vörur fyrir dag­legt líf heim­il­anna eða allt frá kjúklinga­bringum, hakki, beikoni, brauði og kart­öflum yfir í pasta, hafra­mjöl og kaffi. Fryst­ingin nær einnig til nauð­synja­vara á borð við eld­hús­rúllur, sal­ern­is­pappír, upp­þvotta- og þvotta­efni, hrein­læt­is­vörur og gælu­dýra­fóður. Margar þess­ara vara eru meðal ódýr­ustu val­kost­anna í sínum vöru­flokki og verða vör­urnar merktar með „Fryst verð“ á raf­rænum hillu­miðum inni í verslun. 

„Þótt mat­vara sé ekki helsti drif­kraftur verð­bólg­unnar um þessar mundir teljum við mik­il­vægt að allir leggi sitt af mörkum til að skapa auk­inn stöð­ug­leika og styðja við lækkun verð­bólgu og vaxta. Við viljum sýna það í verki og höfum því ákveðið að frysta verð á um 650 vörum sem skipta heim­ilin raun­veru­legu máli,“ segir Guðrún Aðal­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar. 

Varan mun ekki hækka út árið

Krónan greip til sam­bæri­legrar aðgerðar árið 2022 þegar verð var fryst á 240 vörum undir vöru­merkjum Krón­unnar og First Price. Nú nær fryst­ingin til um 650 vöru­liða undir merkj­unum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. 

„Við viljum gefa við­skipta­vinum vissu um að verð þess­ara vara hækki ekki út árið. Ef kostn­aður okkar hækkar á tíma­bil­inu tökum við þá hækkun á okkur, og ef for­sendur skap­ast til verð­lækk­ana munum við skila þeim áfram til við­skipta­vina,“ segir Guðrún. 

Verð­fryst­ingin tekur gildi 24. sept­em­ber og stendur til og með 31. des­em­ber 2026 og mið­ast við almennt sölu­verð var­anna 23. sept­em­ber. Verð var­anna mun því ekki hækka á tíma­bil­inu, jafn­vel þótt inn­kaups­verð, flutn­ings­kostn­aður eða aðrir kostn­að­ar­liðir hækki. Skapist hins vegar svig­rúm til verð­lækk­ana, til dæmis vegna lægra inn­kaups­verðs eða styrk­ingar krón­unnar, verður þeim ávinn­ingi skilað áfram til við­skipta­vina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara