Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Blóðug árás í Mjóddinni

Flestir gerendur undir lögaldri og góðkunn­ingjar lögreglu

Unglingur fluttur á sjúkrahús eftir árás í Mjódd
Ung­lingur fluttur á sjúkra­hús eftir árás í Mjódd Mynd: Steinninn/Wikipedia

Hópur ungmenna réðst á tvo einstaklinga í Mjóddinni í Breið­holti í gærkvöldi. Annar þolendanna, 15 ára gamall, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fengið gler­flösku í höfuðið.

Tilkynning um alvarlega líkams­árás barst lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu á ellefta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu veittist hópur ungmenna, flest á aldrinum 15 til 20 ára, að tveimur einstaklingum öðrum 15 ára og hinum á sextugsaldri.

Ofbeldið stig­magnaðist fljótt þar sem gler­flöskur komu við sögu, en átökin leiddu til þess að 15 ára unglingurinn fékk gler­flösku í höfuðið. Hann var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á sjúkra­húsi.

Þekktust líklega innbyrðis

Unnar Már Ástþórsson, aðal­varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, segir í samtali við RÚV að svo virðist sem ungmennin hafi þekkt fólkið sem ráðist var á. Hann stað­festir jafnframt að flestir gerendurnir hafi verið undir lögaldri og að lögreglan hafi áður haft afskipti af mörgum þeirra vegna annarra mála.

Unnið með barnavernd og foreldrum

Vegna ungs aldurs gerenda verður eftir­fylgni málsins með sérstöku sniði. „Þetta verður unnið með barna­verndar­yfirvöldum og foreldrum í langflestum tilvikum,“ segir Unnar Már um næstu skref í rann­sókninni og meðhöndlun málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra