Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af ristuðum og söltuðum pistasíum merkt Krónunni sem Salvía efh. flytur inn en það greindist ólöglegt varnarefni Clothianidin í vörunni við markaðseftirlit. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlitið innkallað vöruna.
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu.
































Athugasemdir