Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd

Hring­borð Norð­ur­slóða hefst í Hörpu á morgun

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd
Arctic Circle Arctic Circle hefst á morgun Mynd: Aðsend

Aðalþing Hring­borðs Norð­ur­slóða, Arctic Circle, hefst í Hörpu á morgun, fimmtu­dag­inn 8. októ­ber, og stendur til laug­ar­dags­ins 10. októ­ber. Rúmlega 2.000 þátt­tak­endur frá um 70 löndum sækja þingið, þar sem um 200 mál­stofur fara fram með þátt­töku um 700 ræðu­manna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem send var á fjöl­miðla.

Norð­ur­slóðir í breyttri heims­mynd verða í brennid­epli þings­ins, þar sem meðal ann­ars verður fjallað um alþjóða­stjórn­mál, varn­ar­mál, vís­indi, lofts­lags­mál, við­skipti og fjár­fest­ingar. Full­trúar Banda­ríkj­anna, Græn­lands, Kanada, Evr­ópu­sam­bands­ins og Kína verða áber­andi í dag­skránni.

Meðal þeirra sem ávarpa þingið á morgun eru Anita Anand, utan­rík­is­ráð­herra Kanada, Múte B. Egede, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, og Jozef Síkela, fram­kvæmda­stjóri ESB á sviði alþjóð­legs sam­starfs.

Þá verður fjallað um stefnu og aðgerðir Banda­ríkj­anna á Norð­ur­slóðum og Mike Dunleavy, rík­is­stjóri Alaska, situr fyrir svörum. Á föstu­dag mun Fu Ying, sem hefur gegnt áhrifa­miklum störfum í utan­rík­is­málum Kína, ræða við þátt­tak­endur um þróun og áform Kína á alþjóða­vett­vangi.

Ráð­herrar og stjórn­ar­er­ind­rekar frá meðal ann­ars Tyrk­landi, Noregi, Bret­landi, Færeyjum, Eist­landi, Indlandi og Singapúr taka einnig þátt í dag­skránni.

Loftslagsbreytingar og gervigreind

Vísindi og lofts­lags­mál skipa jafn­framt stóran sess á þing­inu. Fjöldi þekktra vís­inda­manna og stjórn­enda rann­sókna­stofn­ana mun fjalla um breyt­ingar á haf­straumum, jöklum og lofts­lagi.

Johan Rockström, for­stjóri Potsdam-rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar í Þýska­landi, mun á föstu­dag ræða mögu­legar afleið­ingar þess að AMOC-haf­strauma­kerfið veik­ist eða hrynji. Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverf­is­ráð­herra, tekur þátt í umræð­unum.

Áður en að þeirri umræðu kemur mun Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, ræða við banda­ríska sér­fræð­ing­inn Tristan Harris um þróun gervi­greindar og mögu­legar hættur sem henni fylgja.

Viðskipti og fjárfestingar á Norðurslóðum

Samhliða aðal­þing­inu fer fram sér­stakt við­skipta­þing þar sem for­stjórar fyr­ir­tækja, banka og fjár­fest­inga­sjóða ræða við­skipta­tæki­færi og fjár­fest­ingar á Norð­ur­slóðum.

Á tólf hring­borðum verður meðal ann­ars fjallað um orku­mál, inn­viði, sigl­ingar, námu­vinnslu, ferða­þjón­ustu og sjálf­bæra nýt­ingu sjáv­ar­auð­linda, með sér­stakri áherslu á Grænland, Ísland, Kanada og Færeyjar.

Öryggis- og varn­ar­mál verða einnig til umfjöll­unar, auk vís­inda­sam­starfs á tímum vax­andi tog­streitu milli stór­velda. Þær umræður fara fram sam­kvæmt umræðu­reglum Chatham House.

Að öðru leyti eru mál­stofur og umræður á aðal­sviði Arctic Circle opnar öllum þátt­tak­endum sam­kvæmt lýð­ræð­is­reglum sam­tak­anna.

Hátíð í lok þingsins

Aðal­þing­inu lýkur með við­burði á vegum Alaska-ríkis þar sem hljóm­sveitin Pamyua kemur fram og gestum verður boðið upp á rétti frá Alaska.

Að sögn Arctic Circle hefur hlut­verk Hring­borðs Norð­ur­slóða í alþjóð­legri sam­vinnu, vís­indum, við­skiptum og mótun fram­tíðar Norð­ur­slóða orðið sífellt mik­il­væg­ara í ljósi breyttra sam­skipta stór­velda og auk­inna rann­sókna á bráðnun íss og jökla og áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Dagskrá þings­ins er að finna á vef­síðu Arctic Circle.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð