Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

„Sé við­skipta­á­ætlun Skúla Mogensen raun­veru­lega svo við­kvæm að hún þoli ekki breyt­ingu á virð­is­auka­skatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstr­inum?“

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Skúli Mogensen og Sif Sig­mars­dóttir Mynd: Samsett

Skúli Mogensen, stofn­andi Hvamms­víkur, svarar Sif Sig­mars­dóttur fullum hálsi á Vísi eftir að hún gagn­rýndi mál­flutn­ing hans, einnig á Vísi, um fyr­ir­hug­aða hækkun virð­is­auka­skatts á bað­lón. Hann segir skrif hennar að hluta byggja á rang­færslum og rang­túlk­unum og telur hana gera lítið úr þeirri upp­bygg­ingu sem átt hefur sér stað í íslenskri bað­menn­ingu.

Sif fjall­aði í pistli sínum um fyr­ir­hug­aða hækkun virð­is­auka­skatts á bað­lón úr 11 pró­sentum í 24 pró­sent og orð Skúla um að hækk­unin hefði áhrif á frek­ari upp­bygg­ingu í Hvamms­vík. Hún líkti stöð­unni meðal ann­ars við afleið­ingar nið­ur­greiðslna banda­rískra stjórn­valda á maís­rækt á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, sem urðu að hennar mati nei­kvæðar.

Sif velti því upp hvort rekstur sem væri háður lægra skatt­hlut­falli stæði nægi­lega traustum fótum. „Sé við­skipta­á­ætlun Skúla Mogensen raun­veru­lega svo við­kvæm að hún þoli ekki breyt­ingu á virð­is­auka­skatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstr­inum?“ spurði hún.

Skattahækkunin aðeins hluti vandans

Skúli hafnar þeirri túlkun og segir skatta­hækk­un­ina aðeins einn af mörgum þáttum sem hafi áhrif á ákvarð­anir um frek­ari fjár­fest­ingar.

„Við erum að end­ur­skoða tíma­setn­ingu fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda í Hvamms­vík fyrst og fremst vegna þeirrar miklu óvissu og óstöð­ug­leika sem nú ríkir, bæði hér heima og erlendis,“ skrifar Skúli.

Hann nefnir meðal ann­ars háa stýri­vexti, verð­bólgu, vinnu­deilur, hátt elds­neyt­is­verð og vax­andi atvinnu­leysi. Fyr­ir­huguð hækkun virð­is­auka­skatts bæt­ist síðan við þá óvissu.

„Þegar stjórn­völd hyggj­ast svo meira en tvö­falda virð­is­auka­skatt á bað­lón, úr 11% í 24%, með svo skömmum fyr­ir­vara, getur það hæg­lega orðið drop­inn sem fyllir mæl­inn.“

Skúli telur jafn­framt skamm­sýni að ráð­ast í slíka skatta­hækkun við núver­andi efna­hags­að­stæður. Að hans mati þurfi að horfa til mögu­legra áhrifa á fjár­fest­ingar, atvinnu­sköpun og verð­mæta­sköpun en ekki aðeins skatt­hlut­falls­ins sjálfs.

Hann bendir á að fyrir um ára­tug hafi aðeins fjögur bað­lón verið starf­andi hér á landi en nú séu þau um 18. Á sama tíma hafi tugir millj­arða króna verið fjár­festir í upp­bygg­ingu grein­ar­innar.

„Miklu skyn­sam­legra væri að leyfa þess­ari atvinnu­grein að halda áfram að vaxa og dafna með til­heyr­andi fjár­fest­ingum, atvinnu­sköpun og auknum skatt­tekjum, fremur en að draga úr upp­bygg­ingu hennar með skyndi­legum skatta­hækk­unum,“ segir Skúli.

Bendir á skattfrelsi sundlauganna

Hann vísar einnig til þess að hefð­bundnar sund­laugar séu almennt und­an­þegnar virð­is­auka­skatti af aðgangs­eyri þótt þær séu að ein­hverju marki í sam­keppni við einka­rekin bað­lón. Skúli seg­ist þó aldrei hafa kvartað undan þeirri stöðu enda gegni sund­laug­arnar mik­il­vægu sam­fé­lags­legu hlut­verki.

Þá mót­mælir hann þeirri nálgun að gagn­rýni á skatta­hækk­un­ina jafn­gildi kröfu um opin­beran stuðn­ing við atvinnu­grein­ina.

Skúli segir fjöl­skyldu sína líta á Hvamms­vík sem lang­tíma­verk­efni og að hagn­aður hafi ekki verið tek­inn út úr rekstr­inum í formi arð­greiðslna heldur nýttur til áfram­hald­andi upp­bygg­ingar.

„Mér finnst því bæði sér­kenni­legt og sorg­legt ef umræðan er komin á það stig að gera lítið úr þeirri upp­bygg­ingu sem frum­kvöðlar og fjár­festar hafa staðið fyrir í ferða­þjón­ustu víðs vegar um landið.“

Segir auðvelt að sitja við lyklaborðið

Undir lok pistils­ins beinir Skúli síðan orðum sínum beint að Sif og gagn­rýnir afstöðu hennar með nokkuð hvössum hætti.

„Það er auð­velt að sitja við lykla­borðið og skrifa pistla um hvernig eigi að skatt­leggja fjár­fest­ingar ann­arra. Það er allt annað að leggja eigið fé að veði, taka áhættu, byggja eitt­hvað upp frá grunni og skapa störf og verð­mæti fyrir sam­fé­lagið.“

Þrátt fyrir gagn­rýn­ina lýkur Skúli pistl­inum á létt­ari nótum og býður Sif í heim­sókn: „Að því sögðu, Sif, ertu að sjálf­sögðu alltaf vel­komin í böðin í Hvamms­vík!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð