Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Glæpa­mað­ur­inn hafði áður stolið hljóð­færum fyrir eina og hálf milljón

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Sóltún Mynd: Skjáskot/ja.is

Karl­maður hefur verið dæmdur í tíu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir fjölda brota, þar á meðal þjófn­aði, nytja­stuld og umferð­ar­laga­brot. Hann ját­aði brotin ský­laust fyrir dómi.

Brotin voru framin frá nóv­em­ber 2024 til apríl 2025. Meðal þeirra var inn­brot í bif­reið í nóv­em­ber 2024 þar sem stolið var tveimur raf­magns­gít­urum og hljóð­blönd­un­ar­tæki. Verðmæti bún­að­ar­ins var talið um 1,5 millj­ónir króna.

Í mars 2025 tók mað­ur­inn arm­bandsúr og tvær leður­ólar úr skart­gripa­verslun í Reykja­vík án þess að greiða fyrir vör­urnar. Sölu­verð­mæti þeirra var tæp­lega 47 þús­und krónur.

Nokkrum dögum síðar tók hann bif­reið í heim­ild­ar­leysi og ók henni um Borg­ar­tún í Reykja­vík þrátt fyrir að vera sviptur öku­rétti. Í blóð­sýni hans mæld­ust amfetamín, klónazepam og oxýkó­don.

Maðurinn sinnti ekki fyr­ir­mælum lög­reglu um að stöðva bif­reið­ina. Hann ók meðal ann­ars gegn rauðu ljósi á gatna­mótum Borg­ar­túns og Hall­gerð­ar­götu og Borg­ar­túns og Kringlu­mýr­ar­brautar. Þá ók hann yfir á öfugan veg­ar­helm­ing áður en lög­reglu tókst að stöðva för hans við Sóltún.

Ítrekað dæmdur fyrir sambærileg brot

Maðurinn var einnig sak­felldur fyrir inn­brot á veit­inga­stað í apríl 2025. Þaðan stal hann pen­inga­skúffu, spjald­tölvu og reiðufé. Þá stal hann um 100 þús­und krónum úr pen­inga­skúffu versl­unar og braust inn í bif­reið við bens­ín­stöð þar sem hann stal fatn­aði.

Í dóm­inum kemur fram að mað­ur­inn eigi umfangs­mik­inn saka­feril að baki. Hann hefur ítrekað verið dæmdur fyrir þjófn­aði, önnur auðg­un­ar­brot og umferð­ar­laga­brot.

Með nýja dóm­inum hefur hann í sjö­unda sinn verið fund­inn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana og fíkni­efna. Þá er þetta í fjórða sinn sem hann er sak­felldur fyrir akstur þrátt fyrir svipt­ingu öku­réttar.

Dómurinn taldi játn­ingu manns­ins horfa honum til máls­bóta en saka­feril hans til refsi­þyng­ingar. Ekki þótti til­efni til að skil­orðs­binda refs­ing­una.

Maðurinn var því dæmdur í tíu mán­aða fang­elsi og ævi­löng svipt­ing öku­réttar hans áréttuð. Þá var honum gert að greiða rúm­lega 1,15 millj­ónir króna í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ