Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Grikkinn Alex­andros Katzanos seg­ist hafa komið til Íslands í atvinnu­leit

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands Maðurinn seg­ist ekki hafa vitað af efn­unum Mynd: Helgi Gunnarsson

Grískur karl­maður sem ákærður er fyrir að smygla tæpum 43 kílóum af kóka­íni til Íslands seg­ist ekki vita hvernig efnin komust í bíl hans. Málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands, en mað­ur­inn hefur setið í gæslu­varð­haldi frá hand­töku sinni í mars. Aust­ur­frétt sagði frá mál­inu.

Kókaínið fannst falið undir fölskum botni sendi­bíls­ins þegar mað­ur­inn kom með Norrænu til Seyð­is­fjarðar 27. mars. Styrk­leiki efn­anna mæld­ist um 84 pró­sent og var þetta þá mesta magn kóka­íns sem lagt hafði verið hald á hér á landi.

Maðurinn, Alex­andros Katzanos, sagð­ist hafa komið til Íslands í atvinnu­leit og ætlað að kanna mögu­leika á starfi við við­gerðir á Caterpillar-vinnu­vélum hjá fyr­ir­tæk­inu Klett. Hann hafði þó hvorki haft sam­band við Klett né gert ráð­staf­anir vegna gist­ingar meðan á atvinnu­leit­inni stæði.

Við aðal­með­ferð máls­ins kom einnig fram að Katzanos hefði eytt öllum gögnum úr síma sínum meðan hann beið eftir toll­skoðun. Hann sagði það hafa verið vegna ótta við að honum yrði meinað að koma til lands­ins, en gat ekki útskýrt hvers vegna nauð­syn­legt hefði verið að eyða öllum gögnum.

Grunsemdir um tengsl við annan Grikkja

Athygli vakn­aði á því að annar grískur maður kom með Norrænu á sama tíma og ók bíl á undan Katzanos frá borði. Ekkert fíkni­efni fannst í bíl þess manns, en honum var meinað að koma til lands­ins vegna meintra tengsla við erlend mót­or­hjóla­sam­tök.

Katzanos sagð­ist fyrst ekki þekkja mann­inn en við­ur­kenndi síðar að þeir þekkt­ust. Gögn sem bár­ust frá útlöndum bentu jafn­framt til þess að þeir hefðu ferð­ast saman víða um Evrópu, meðal ann­ars á leið sinni til Dan­merkur áður en þeir fóru um borð í Norrænu.

Rann­sókn­ar­gögn sýndu einnig að Katzanos hefði ferð­ast mikið um Evrópu árið áður en hann var hand­tek­inn. Þá höfðu millj­ónir króna borist inn á banka­reikn­ing hans á einu ári án þess að skýr­ingar hans á upp­runa fjár­ins þættu fylli­lega sann­fær­andi að mati rann­sókn­ar­að­ila. Fram kom að hann hefði áður hlotið sjö ára fang­els­is­dóm fyrir fíkni­efna­brot erlendis, þótt hann héldi því fram að það mál hefði verið fellt niður.

Gæti hafa verið burðardýr

Verjandi Katzanos spurði rann­sókn­ar­að­ila hvort hann kynni að hafa verið burð­ar­dýr fyrir stærra glæpa­net. Eitt vitni taldi mögu­legt að hann tengd­ist hópi sem sæi um dreif­ingu fíkni­efna um Evrópu, en tók fram að starf­semi slíkra hópa væri gjarnan skipu­lögð þannig að þátt­tak­endur hefðu tak­mark­aða vit­neskju um heild­ar­um­fang hennar.

Hámarks­refs­ing fyrir brotið getur verið 12 ára fang­elsi. Ekki liggur fyrir hvenær dómur verður kveð­inn upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð