Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

„Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki lengur leikið í leik­riti. Ég get ekki lengur leikið í kvik­mynd. Ég get ekki lengur lesið.“

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Lafði Judy Dench Sjónin hefur svipt Dench mögu­leik­ann á að leika Mynd: CHRIS JACKSON / POOL / AFP

Breska leik­konan Judi Dench, sem hefur átt far­sælan feril í sjö ára­tugi, segir að versn­andi augn­sjúk­dómur komi nú í veg fyrir að hún geti haldið áfram að leika.

Dench, sem er 91 árs og hlaut Ósk­arsverð­laun fyrir leik sinn, greind­ist með ald­urstengda augn­botna­hrörnun árið 2012. Sjúk­dóm­ur­inn hefur smám saman gert henni erf­ið­ara fyrir í dag­legu lífi og haft alvar­leg áhrif á leik­feril hennar.

Í nýlegu við­tali í þætt­inum Today á BBC Radio 4 lýsti hún stöðu sinni með þessum orðum:

„Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki lengur leikið í leik­riti. Ég get ekki lengur leikið í kvik­mynd. Ég get ekki lengur lesið.“

Dench lagði áherslu á mik­il­vægi útvarps í lífi sínu og sagði að fólk yrði að læra að aðlag­ast breyttum aðstæðum.

„Maður verður að aðlag­ast þessu öllu, taka til­lit til þess og halda svo bara áfram án þess að hugsa of mikið um það,“ sagði hún.

Leik­konan sagði einnig að hún kæmi stundum auga á fólk og gengi til þess, jafn­vel til að faðma það, en átt­aði sig svo þegar hún kæm­ist nær að hún þekkti fólkið ekki. Hún bætti við að hún gæti alls ekki séð and­lit við­mæl­anda síns, Emmu Barnett.

Sorgmædd yfir því að sjá ekki bláklukkurnar

Dench sagð­ist sér­stak­lega sorg­mædd yfir því að geta ekki lengur séð bláa lit­inn.

„Mér var sagt að blá­klukk­urnar hefðu verið stór­kost­legar í sumar, en ég gat ekki séð eina ein­ustu. Ég þekki þó trén mín og hluti af því sem ég sé bygg­ist á minn­ing­unni og hluti á því sem ég von­andi get enn greint,“ sagði hún.

Þegar hún var spurð um öldrun sagð­ist hún ekki vilja hugsa of mikið um hana.

Í við­tali við tíma­ritið Notebook árið 2023 hafði Dench einnig rætt sjón­vand­ann. Þá sagði hún sér ómögu­legt að sjá almenni­lega á kvik­mynda­setti eða lesa hand­rit, en hún reyndi að finna leiðir til að takast á við það. Hún hefði marga vini sem gætu hjálpað henni að læra hand­ritin og byggði meðal ann­ars á ljós­mynda­minni sínu.

Árið 2019 hætti Dench að aka bíl vegna sjón­skerð­ing­ar­innar. Hún lýsti þeirri ákvörðun sem einni erf­ið­ustu reynslu lífs síns.

„Þetta var hræði­legt. En ég veit að ef ég sest aftur undir stýri gæti ég orðið ein­hverjum að bana,“ sagði hún þá.

Augnbotnahrörnun hefur áhrif á miðjusjónina

AMD er augn­sjúk­dómur sem getur gert miðju­sjón fólks óskýra. Samkvæmt National Eye Institute verður ald­urstengd augn­botna­hrörnun „þegar öldrun veldur skemmdum á augn­botns­dílnum, þeim hluta aug­ans sem stjórnar skar­pri sjón beint fram á við.“ Sjúk­dóm­ur­inn veldur ekki algjörri blindu.

Dench er talin ein fremsta leik­kona sinnar kyn­slóðar. Hún hlaut Ósk­arsverð­laun árið 1999 fyrir hlut­verk sitt í Shakespe­are in Love og er einnig þekkt fyrir að leika M í James Bond-mynd­unum. Þá er hún einnig þekkt sem ein helsta sviðs­leik­kona sem Bretland hefur átt.

Í nýrri end­ur­minn­inga­bók sinni, Is It Too Late to Make a Run For It?, rifjar hún meðal ann­ars upp feril sinn í Bond-mynd­unum og segir Tomorrow Never Dies hafa verið krefj­andi verk­efni. Hún fjallar einnig um mis­heppn­aða kvik­mynda­út­gáfu söng­leiks­ins Cats.

Hér fyrir neðan má sjá lafði Judy Dench syngja lagið Send in the Clowns úr söng­leiknum A Little Night Music árið 1995.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta