Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

Google stefnir á að byggja gervi­greind­ar­gagna­ver á svæð­inu

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi
Drullu­svæðið Um 400.000 tré hafa verið felld án leyfis Mynd: ALESSANDRO RAMPAZZO / AFP

Tækniris­inn Google felldi um 250 þús­und tré í skógi nærri bænum Muhos í norð­ur­hluta Finn­lands til að rýma fyrir gagna­veri, án þess að ljúka til­skilnu umhverf­is­mati. Einnig voru um 150 þús­und tré felld á öðrum bygg­ing­ar­stað í Otanmäki. Finnsk yfir­völd hafa fyr­ir­skipað tíma­bundna stöðvun fram­kvæmda. The Guardian fjallar um málið.

Skóg­ur­inn í Muhos náði yfir um 330 hekt­ara svæði. Nú er þar að mestu ber jörð, leðja og jarð­vegur sem vinnu­vélar hafa rótað upp. Íbúar hafa jafn­framt lýst áhyggjum af því að brúnt vatn frá fram­kvæmda­svæð­inu renni í læk sem teng­ist ánni Oulujoki.

Google baðst afsök­unar á skóg­ar­högg­inu en sagði fyr­ir­tækið hafa farið eftir bestu túlkun sinni á lögum á þeim tíma. Finnsk yfir­völd stöðv­uðu fram­kvæmdir í Muhos og við Otanmäki fyrr í þessum mán­uði eftir að í ljós kom að nauð­syn­legu umhverf­is­mati hafði ekki verið lokið.

Deilt um ávinninginn fyrir Finnland

Gagna­verin eru hluti af 13 millj­arða evra fjár­fest­ingu Google í gervi­greind­ar­innviðum. Finnsk stjórn­völd hafa fagnað fjár­fest­ing­unni og for­sæt­is­ráð­herr­ann Petteri Orpo sagt að það sé for­gangs­verk­efni að laða erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins.

Málið hefur þó vakið mikla reiði og kallað fram spurn­ingar um umhverf­is­vernd, orku­notkun og ávinn­ing heima­manna. Yfir 93 þús­und manns hafa skrifað undir áskorun um strang­ari reglur um gagna­ver og gjald sem renni til sam­fé­laga sem verða fyrir umhverf­is­spjöllum.

Jussi Kangas­harju, yfir­maður tölv­un­ar­fræði­deildar Háskól­ans í Helsinki, segir að gagna­ver skapi til­tölu­lega fá störf og að þjóð­hags­legur ávinn­ingur Finn­lands sé tak­mark­aður. Fyr­ir­tækin þjóni fyrst og fremst alþjóð­legum við­skipta­vinum og lítið af fyr­ir­tækja­sköttum skili sér til Finn­lands.

Íbúar nærri fram­kvæmda­svæð­unum hafa einnig lýst áhyggjum af hávaða, áhrifum á dýra­líf og vatns­gæði. Í Otanmäki segja íbúar að úlfar hafi leitað inn í þorpið eftir að dýrin hrökt­ust úr skóg­inum. Nátt­úru­vernd­ar­sinnar segja jafn­framt að fuglar hafi misst búsvæði sín.

Sumir íbúar styðja þó fram­kvæmd­ina vegna þeirra starfa og skatt­tekna sem hún gæti skapað. Svæðið glímir við fækkun íbúa og öldrun þjóð­ar­innar, og sveit­ar­fé­lögin von­ast eftir nýjum fjár­fest­ingum.

Google seg­ist vinna að því að vernda vatns­gæði á svæð­inu í Muhos og hygg­ist gróð­ur­setja tré á 130 hekt­urum. Nátt­úru­vernd­ar­sinnar telja það þó ekki duga til að bæta tjónið sem þegar hefur orðið.

Fyr­ir­tækið segir að það hafi stöðvað und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir eftir til­mæli finnskra yfir­valda 6. októ­ber og muni verða við kröfum þeirra. Umhverf­is­ráðu­neyti Finn­lands segir stjórn­völd fylgj­ast með þróun gagna­vera­geirans og vera reiðu­búin að leggja til laga­breyt­ingar ef þörf krefur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco