Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Amnesty International gagnrýnir yfirvöld í Nígeríu fyrir að vanrækslu

Nígerískur lögreglumaður
Níger­ískur lög­reglu­maður Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint Mynd: Ayano Tosin / Unsplash

Tala látinna í árás vopnaðra manna á þorp í austur­hluta Nígeríu á föstudag er komin upp í 58, að sögn eftir­lifenda sem ræddu við AFP-frétta­stofuna í gær. Fleiri lík fundust eftir árásina.

Vopnaðir menn, sem taldir eru tilheyra glæpa­gengi sem heimamenn kalla „ræningja“, komu á mótor­hjólum á föstudag og réðust inn í þorpið Binnari í norð­austurhluta Taraba-héraðs. Þeir drápu fjölda fólks og rændu verslanir.

Lang­varandi uppreisn jihadista hefur geisað í norð­austurhluta Nígeríu. Í Taraba-héraði, austar í landinu, hafa íbúar einnig þurft að þola árásir glæpa­gengja sem sækjast eftir fjárhags­legum ávinningi fremur en að berjast fyrir ákveðinni hugmynda­fræði.

„Á föstudag fundum við sjö lík eftir að ræningjarnir réðust á samfélagið okkar. Daginn eftir, á laugardag, fundum við 43 lík til viðbótar í ánni. Þannig er tala látinna komin upp í 50,“ sagði Bashir Mamuda Musa, íbúi í Binnari.

Á laugardag höfðu eftir­lifendur talið að 20 manns hefðu látið lífið. Annar íbúi, Abdullahi Zakari, staðfesti að tala látinna væri nú talin vera 50. Erfitt getur verið að finna lík eftir slíkar árásir, þar sem íbúar dreifast í allar áttir til að forðast hættuna. Nú hafa hins vegar átta til viðbótar fundist látnir.

„Margir íbúar, einkum konur og börn, flúðu í átt að ánni til að komast undan byssu­mönnunum. Því miður drukknuðu nokkrir þegar þeir reyndu að flýja árásina,“ sagði Zakari við AFP.

Glæpagengi ógna íbúum dreifbýlis

Vopnuð glæpa­starfsemi er vaxandi vandamál í Nígeríu, einkum í norð­vestur- og miðhluta landsins. Þar berjast öflug glæpa­gengi við lögreglu og her sem hafa takmarkaða getu til að tryggja öryggi í afskekktum sveitum.

Gengin ráðast á þorp og leggja skatta á bændur og námu­rekstur á svæðum þar sem nærvera stjórn­valda er lítil.

Amnesty International í Nígeríu gagnrýndi stjórn­völd á laugardag fyrir að skilja íbúa dreif­býlis eftir varnar­lausa gagnvart vopnuðum glæpa­gengjum.

„Nígerísk stjórn­völd halda áfram að skilja íbúa dreif­býlis í ákveðnum lands­hlutum, einkum í norðri, eftir á valdi vopnaðra ræningja sem fremja ítrekað hræðileg voðaverk án þess að þurfa að sæta ábyrgð,“ sagði mann­réttinda­samtökin.

„Viðvarandi vanræksla stjórn­valda við að draga grunaða gerendur til ábyrgðar stuðlar augljós­lega að því að þeir komist upp með þessa glæpi,“ bættu samtökin við í yfir­lýsingu á samfélags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár