Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýr­ingar hans veru­lega ótrú­verð­ugar

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: BHJ

Daniel Kaczorowski hefur verið dæmdur í tveggja ára og sex mán­aða fang­elsi fyrir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots. Málið sner­ist um rúm 2,2 kíló af kóka­íni sem falin voru í hrað­send­ingu frá Svíþjóð. Dómur var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 23. októ­ber.

Samkvæmt ákæru var Kaczorowski ætlað að taka á móti og hafa í vörslum 2.263,77 grömm af kóka­íni. Efnin voru talin ætluð til sölu og dreif­ingar í ágóða­skyni. Toll­gæslan fann hins vegar fíkni­efnin í send­ing­unni og fjar­lægði þau áður en hún var afhent.

Send­ingin kom til lands­ins 19. júní 2025. Í henni voru meðal ann­ars upp­blás­an­leg dýna, koddi, sæng­ur­föt og ferða­út­varp. Sex loft­tæmdar pakkn­ingar með hvítu dufti voru faldar í sæng­ur­föt­unum og dýn­unni. Rannsókn leiddi síðar í ljós að um kókaín var að ræða.

Lögregla ákvað að setja á svið afhend­ingu send­ing­ar­innar eftir að efnin höfðu verið fjar­lægð. Eft­ir­farar og hlust­un­ar­bún­aði var komið fyrir í pakk­anum og lög­reglu­maður þótt­ist vera send­ill. Kaczorowski tók við send­ing­unni á heim­ili sínu og var skömmu síðar hand­tek­inn.

Kaczorowski neit­aði sök og hélt því fram að hann hefði ekki pantað neitt og ekki vitað hvað væri í pakk­anum. Dómurinn taldi skýr­ingar hans á því hvers vegna hann hefði greitt fyrir og tekið við send­ing­unni veru­lega ótrú­verð­ugar. Þá var bent á mis­ræmi í fram­burði hans hjá lög­reglu og fyrir dómi.

Nið­ur­staða dóms­ins var að hafið væri yfir skyn­sam­legan vafa að Kaczorowski hefði vitað eða mátt vita að send­ingin inni­héldi fíkni­efni.

Refs­ingin var ákveðin fang­elsi í tvö ár og sex mán­uði og þótti ekki unnt að skil­orðs­binda hana. Gæslu­varð­hald kemur til frá­dráttar.

Kaczorowski var einnig gert að greiða tæpar 3,3 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun og annan sak­ar­kostnað. Kókaínið var gert upp­tækt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina