Anna María Jónsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, vakti athygli á mikilvægi samfélagsþjónustu, menningarstarfs og félagslegra úrræða í störfum þingsins á Alþingi í dag. Hún sagði mikilvægt að horfa ekki eingöngu til beins kostnaðar þegar lagt væri mat á slíka þjónustu heldur einnig til þeirra langtímaáhrifa sem niðurskurður gæti haft.
„Hvernig lífsgæði viljum við tryggja þegnum okkar og er hægt að meta þau til fjár?“ spurði Anna María í upphafi ræðu sinnar.
Hún nefndi meðal annars bókasöfn, leikhús, listasöfn og félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni og eldra fólk og velti því upp hvað það myndi kosta samfélagið ef slíkri starfsemi væri ekki haldið úti.
„Hvernig reiknum við út efnahagsleg áhrif af veittri þjónustu, því að þau eru augljóslega meiri en launakostnaður þeirra sem þjónustuna veita?“ sagði Anna María.
Hún benti á að þjónustan næði til einstaklinga á öllum aldri og með ólíkar þarfir. Ungmenni sæktu meðal annars félagsmiðstöðvar þar sem sérhæft starfsfólk sinnti félagslegum þörfum þeirra. Þá gegndu bókasöfn, leikhús og listasöfn mikilvægu hlutverki, auk þess sem eldra fólk sækti félagsskap, fræðslu og afþreyingu í þjónustumiðstöðvar.
Spyr um raunverulegan ábata
Anna María vék einnig að þjónustu sem miðaði að því að virkja fólk til atvinnuþátttöku og virkni í samfélaginu. Sagði hún slíka þjónustu hafa verið metna fjárhagslega óarðbæra og því lagða af við lok sumars.
„Má spyrja sig að hvaða leyti sú ákvörðun skilaði raunverulegum ábata fyrir samfélagið. Það er ekki gott að segja,“ sagði hún.
Í lok ræðu sinnar varaði Anna María við því að sparnaðaraðgerðir gætu haft afleiðingar sem kæmu ekki strax fram í bókhaldi.
„Sumt verður ekki metið til fjár,“ sagði hún og bætti við að spyrja þyrfti hvað það myndi kosta til lengri tíma „ef við höggvum of nærri kjarna samfélags okkar, menningararfi okkar og lýðheilsu“.


























Athugasemdir