Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Þingmenn saka Daða Má um að hafa sagt þinginu ósatt

Ný gögn um fundi ráð­herra með stjórn Lands­virkj­unar án þáver­andi for­stjóra hafa orðið til­efni kröfu um skýr­ingar á Alþingi og skoðun þing­nefndar.

Þingmenn saka Daða Má um að hafa sagt þinginu ósatt
Krafa um svör Þingmenn kröfð­ust þess að ráð­herr­ann skýrði starfs­lok fyrr­ver­andi for­stjóra Lands­virkj­unar. Mynd: Samsett / Víkingur

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust þess við upp­haf þing­fundar í dag að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála og efna­hags­ráð­herra mætti á Alþingi hið fyrsta og svar­aði fyrir starfs­lok Harðar Arn­ar­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Lands­virkj­unar. Þingmenn vís­uðu meðal ann­ars til nýrra gagna um sam­skipti ráð­herra og stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins.

Krefjast þess að ráðherra mæti á þing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rifj­aði upp svör Daða Más á Alþingi 19. októ­ber um starfs­lok Harðar, sem hafði gegnt starfi for­stjóra Lands­virkj­unar í 17 ár.

„Nú liggur það fyrir að þær upp­lýs­ingar sem hæstv. ráð­herra gaf þing­inu eru ekki réttar,“ sagði Guð­laugur og bætti við að ráð­herr­ann hefði áður sagt að öll sagan væri sögð og að Hörður hefði ekki hrökkl­ast úr starfi.

„Það er aug­ljós­lega ekki rétt,“ sagði Guð­laugur og krafð­ist þess að ráð­herr­ann mætti á þingið í dag til að útskýra málið.

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, vakti athygli á upp­lýs­ingum um að stjórn Lands­virkj­unar hefði átt níu fundi með ráð­herra á til­tölu­lega skömmum tíma. Sagði hún það vekja spurn­ingar í ljósi yfir­lýs­inga rík­is­stjórn­ar­innar um fag­lega stjórn­ar­hætti og arms­lengd stjórn­mál­anna frá rík­is­fyr­ir­tækjum.

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði gögn máls­ins sýna mikið mis­ræmi sem kall­aði á skýr­ingar.

„Nú erum við að sjá atburða­rás út frá gögnum sem sýna í besta falli mikið mis­ræmi sem þarfn­ast mik­illar útskýr­ingar gagn­vart þing­inu og í versta falli ósann­indi af hálfu ráð­herra,“ sagði Hildur.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gekk enn lengra og sagði skrif­leg gögn benda til þess að ráð­herra hefði sagt þing­inu ósatt gegn betri vit­und. Sagði hann það eitt það alvar­leg­asta sem gæti gerst í þing­sal.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók undir kröf­una um að ráð­herra mætti fyrir þingið. Hann sagði óhjá­kvæmi­legt að stjórn­skip­unar og eft­ir­lits­nefnd tæki málið jafn­framt til skoð­unar.

„Það er búið að vera þöggun hér í þess­ari umræðu af hálfu fjár­mála­ráð­herra og stjórn­ar­innar,“ sagði Sigurður Ingi og bætti við að málið virt­ist verða alvar­legra eftir því sem fleiri upp­lýs­ingar kæmu fram.

Sigurjón kallaði umræðuna upphlaup

Tilefni umræð­unnar eru meðal ann­ars gögn um funda­höld ráð­herra og stjórnar Lands­virkj­unar án Harðar. Samkvæmt fund­ar­gerð fjár­mála og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins ræddi Daði Már meðal ann­ars ágrein­ing Lands­virkj­unar og Lands­nets við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins 6. jan­úar síð­ast­lið­inn án þess að Hörður væri við­staddur.

Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, gagn­rýndi hins vegar mál­flutn­ing stjórn­ar­and­stöð­unnar og kall­aði umræð­una „upp­hlaup“. Sagði hann eðli­legra að málið yrði tekið fyrir í stjórn­skip­unar og eft­ir­lits­nefnd.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis, sagði að lokum að hún hefði mót­tekið óskir þing­manna og myndi koma þeim til skila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Maðurinn vísaði til sjálfsvígshættu í máli sínu gegn fjölmiðlunum.
Pólitík

Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Pólitík

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Áformin byggja á því að tekjur vaxi hraðar en útgjöld
  • Pólitík

    Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

  • Pólitík

    Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

  • Pólitík

    Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt