Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

11 flottustu dress tískudrottingarinnar frá Wimbeldon-mótinu

Lítum til baka á nokkrar af hennar helstu tísku­sprengjum

Sienna Miller og unnusti Oli Green
Sienna Miller og unnusti Oli Green Mynd: Skjáskot/Sienna Miller

Wimbledon er elsta og virtasta tennismót í heimi og er mótið eitt af fjórum stóru risa­mótunum (e. Grand Slam) sem fram fara árlega á gras­völlum All England Club í úthverfi London. Mótið er þekkt fyrir strangar hefðir, þar á meðal að leikmenn klæðist eingöngu hvítum fötum.

Síðasta Wimbledon-mótið fór fram dagana 29. júní til 12. júlí 2026 þar sem Ítalinn Jannik Sinner vann einliða­leik karla annað árið í röð eftir sigur gegn Alexander Zverev í úrslita­leiknum. Í einliða­leik kvenna sigraði hin tékkneska tennis­kona Linda Nosková.

Einn af föstum liðum mótsins er áhorf­andinn bresk-bandaríska leikkonan og fyrirsætan Sienna Miller en leikkonan hefur hlotið mikið lof fyrir einstak­lega gott auga fyrir tísku og hafa ljós­myndarar keppst um að ná myndum af henni.

Sienna Miller sló fyrst í gegn snemma á 2000-áratugnum og hefur leikið í fjölda vinsælla kvikmynda, þar á meðal Layer Cake, Alfie, Factory Girl og American Sniper.

Glæsileg sólgleraugu, stóru beltin og boho- chic kjólarnir á Glastonbury-hátíðinni hafa verið mörgum innblástur í gegnum tíðina.

Eftir að hafa eignast sitt þriðja barn í maí og tilkynnt trúlofun sína í júní væri skiljanlegt ef stjarnan vildi taka sér hlé frá sviðs­ljósinu í sumar en hún hefur verið dyggur Wimbledon-aðdáandi og gefur sér alltaf tíma fyrir tennis. Sienna-aðdáendum til mikillar gleði mætti Miller í stúkuna í vor/sumar 26-línunni frá Alexander McQueen með skart­gripi frá Hirsh London og Burberry-sólgleraugu.

Ef litið er til fyrri ára er hægt að sjá glæsi­legan stíl hennar. Meðal annars hvíti Galvan-samfestingurinn sem hún klæddist árið 2015 og ljósbrúnu sumarjakka­fötin úr hör sem hún paraði við mjög lága hæla árið 2019. Hún hefur aldrei verið mikið fyrir flatbotna skó og árið 2023 mætti ​​hún á meistara­mótið í röndóttum hörjakkafötum og himinháum plateauskóm. Í fyrra fór Sienna aftur í ræturnar og mætti í boho-pilsi og stuttum hekluðum topp.

Þar sem mótinu er lokið ætlum við að líta til baka á nokkrar af hennar helstu tísku­sprengjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt