1
Fólk

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara

2
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

3
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

4
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

5
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

6
Fólk

Ástarsamband án skuldbindinga

7
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

8
Pólitík

Hjálmtýr spyr: „Hvaða Ísrael er verið að verja?“

9
Heimur

Vísundur fleygði afa nokkra metra upp í loftið

10
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

Til baka

17 ára dæmdur fyrir alvarlegt umferðarslys

Var einnig tekinn með mikið magn fíkniefna

Sæbraut
SæbrautMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 17 ára pilt í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir alvarlegt umferðarslys sem olli rafhlaupahjólanotanda stórfelldum meiðslum auk umfangsmikils fíkniefnalagabrots.

Málið varðar annars vegar umferðarslys sem átti sér stað 21. nóvember 2024 á gatnamótum Sæbrautar og Snorrabrautar í Reykjavík. Samkvæmt ákæru ók pilturinn bifreið gegn rauðu ljósi og lenti á einstaklingi sem var á rafhlaupahjóli og ók yfir gatnamótin á grænu gönguljósi.

Afleiðingar slyssins voru mjög alvarlegar. Brotaþoli hlaut meðal annars nefbeinabrot, áverkaloftbrjóst, mörg rifbrot, áverka á milta, brot á hluta lendahryggs og mjaðmagrindar, auk opinna sára á andliti og áverka á hjarta.

Hins vegar var pilturinn einnig ákærður fyrir að hafa 9. mars 2025 haft í vörslum sínum fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni. Við leit lögreglu í bifreið hans fundust meðal annars yfir 216 grömm af kannabisblönduðu efni, kókaín, ketamín, marijúana, LSD, Alprazolam-töflur og kannabisvökvi. Þá fundust einnig 203 þúsund krónur í reiðufé sem talið var tengjast fíkniefnasölu.

Ákærði játaði sök skýlaust við meðferð málsins. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að hann var aðeins 17 ára þegar brotin voru framin, hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og játaði brotin tafarlaust.

Þrátt fyrir alvarleika brotanna taldi dómurinn rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og láta hana falla niður að tveimur árum liðnum, að því gefnu að hann haldi almennt skilorð.

Jafnframt voru fíkniefnin, Apple iPhone-sími og 203 þúsund krónur gerð upptæk. Bótakrafa hins slasaða var skilin frá sakamálinu og verður tekin fyrir í sérstöku einkamáli síðar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá
Minning

Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins
Heimur

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112
Heimur

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112

Létust með 42 mínútna millibili
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun
Pólitík

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna
Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna
Heimur

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun
Heimur

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur
Heimur

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala
Landið

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Kristinn V. Jóhannsson er látinn
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

„Hann öskraði af kvölum“
Viðtal
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

„Þessi turn er svo sannarlega ekki innleggið sem þurfti til að gera þetta betra“
Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga
Innlent

Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga

Hagkaups kokteilsósa innkölluð
Innlent

Hagkaups kokteilsósa innkölluð

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

Varað við neyslu á nautakjötsrétti
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

Loka auglýsingu