Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Áhrifavaldur átti í sambandi við tugi fanga

Sumir þeirra afplána dóma fyrir alvarlega ofbeldis­glæpi, þar á meðal morð og vopnuð rán

Ash Trevino
Ash Trevino

Bandaríski áhrifavaldurinn Ash Trevino átti að sögn saksóknara í samskiptum eða samböndum við tugi fanga í Texas á undan­förnum árum. Sumir þeirra afplána dóma fyrir alvarlega ofbeldis­glæpi, þar á meðal morð og vopnuð rán.

Þetta kemur fram í dóms­skjölum sem bandaríski miðillinn TMZ hefur undir höndum vegna máls Trevino, sem hefur verið ákærð fyrir velferðar- og heilbrigðis­svik.

Samkvæmt gögnum saksóknara er talið að Trevino hafi átt í samböndum við um 50 til 75 fanga sem vistaðir eru í fangelsum í Texas. Saksókn­arar segja fanganna afplána dóma fyrir ýmis ofbeldis­brot, meðal annars gróf rán og morð.

Í máls­gögnunum er einnig fjallað um starfsemi Trevino á samfélags­miðlum. Saksókn­arar saka hana meðal annars um að hafa óskað eftir fjár­framlögum frá fylgjendum sínum á TikTok gegn því að birta upplýsingar um heilsufar einstaklings sem var á hennar framfæri. Þá er einnig vísað til þess að hún hafi birt kynferðis­lega gróft efni og staðið fyrir beinum útsendingum af svipuðum toga á samfélags­miðlum.

Trevino var handtekin í desember árið 2025. Hún greiddi tryggingu og var látin laus en var handtekin á ný í mars á þessu ári vegna meintra brota á skilyrðum lausnarinnar.

Hún var ákærð fyrir velferðar­svik og heilbrigðis­svik.

Trevino játaði brotin fyrir dómi í vikunni og komst þar með hjá frekari fangelsis­vist. Hún var dæmd til tveggja ára eftirlits í samfélaginu og gert að sinna 120 klukku­stundum af samfélags­þjónustu.

Þá þarf hún að sækja námskeið sem ætlað er að koma í veg fyrir þjófnað og fá fjármála­ráðgjöf. Jafnframt var henni gert að endur­greiða ríkinu tæplega 16.800 Bandaríkja­dali vegna málsins.

Trevino hefur vakið töluverða athygli á samfélags­miðlum undan­farin ár og byggt upp stóran hóp fylgjenda, meðal annars á TikTok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs