Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Ariana Grande útskýrir hlé frá sviðsljósinu

„Fólk þarf stundum að setja mörk og taka sér hlé“

Ariana Grande útskýrir hlé frá sviðsljósinu
Ariana Grande Söng­konan þarf pásu Mynd: Instagram

Söng­konan Ariana Grande hefur útskýrt ákvörðun sína um að draga sig í hlé frá opin­beru lífi eftir að tón­leika­ferða­lagi hennar, Eternal Sunshine Tour, lýkur.

Um helg­ina greindi tals­maður Grande frá því að hún hygð­ist taka sér hlé vegna „enda­lausrar og við­var­andi opin­berrar gagn­rýni“. Á tón­leikum í Chicago ákvað söng­konan hins vegar að ávarpa aðdá­endur sína beint og útskýra ástæð­urnar.

„Stundum, þegar fréttir ber­ast sem koma ekki beint frá mér, geta hlut­irnir orðið ýktir. Ég vildi því tala beint við aðdá­endur mína í kvöld því mér þykir svo vænt um ykkur,“ sagði Grande.

Hún lagði áherslu á að ákvörð­unin hefði ekki verið tekin í flýti eða sem við­brögð við nýlegri umræðu.

„Til­kynn­ingin sem birt var í gær var hvorki skyndi­leg né til komin sem við­bragð. Ég hafði ákveðið þetta fyrir löngu og gert hljóð­láta áætlun. Þetta var vel ígrunduð ákvörðun sem ég tók af öryggi.“

Grande sagði að aðdá­endur hefðu haft áhyggjur af því að nei­kvæð umræða væri að hafa slæm áhrif á hana, en hún hafn­aði því.

„Ég vil að þið vitið að margt getur verið satt á sama tíma. Fólk þarf stundum að setja mörk og taka sér hlé. En jafn­framt hefur þetta verið og mun halda áfram að vera besta reynsla starfs­fer­ils míns og sköp­un­ar­lífs. Ekkert mun spilla því.“

Hún bætti við að ástin frá aðdá­endum og gleðin við að skapa tón­list skiptu meira máli en allt annað.

„Ekkert af því sem sagt er getur afbakað raun­veru­leik­ann eða verið sterkara en kær­leik­ur­inn sem við deilum og til­finn­ingin sem fylgir því að skapa list með fólki sem ég elska og ber virð­ingu fyrir.“

Söng­konan sagði einnig:

„Ég tek þetta með mér. Hitt ruslið er ekki mitt að bera, þannig að ég ber það ekki.“

Und­an­farnar vikur hafa margir aðdá­endur lýst áhyggjum af útliti Grande eftir útgáfu mynd­bands­ins við nýja lagið Petal en hún þykir hafa grennst ískyggi­lega mikið. Í kjöl­farið stað­festi tals­maður hennar að hún hygð­ist stíga tíma­bundið út úr sviðs­ljós­inu eftir að tón­leika­ferða­lag­inu lýkur.

Samkvæmt tals­manni Grande ætlar hún að ljúka ferða­lag­inu „heil­brigð og glöð“ áður en hún tekur sér „vel verð­skuldað hlé frá opin­berum störfum og fram­komum“, sem hafi orðið til­efni „enda­lausrar og við­var­andi opin­berrar gagn­rýni.“

Grande á eftir tvo tón­leika í Chicago áður en hún heldur til Bret­lands, þar sem hún verður með tíu tón­leika í O2 Arena í London. Tón­leika­ferða­lag­inu lýkur 1. sept­em­ber.

Hér fyrir neðan má sjá téð mynd­band en við­kvæmir eru var­aði við myndefn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Egill segir heim­ild­ar­mynd afhjúpa afmennskun ísra­elska hers­ins á Gaza

Egill rifjar upp skilgreiningu Benjamins Netanyahu á hryðjuverkum og segir hana eiga við um framferði Ísraels sem hann lýsir í grein sinni.
Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Stóð á haus í 6.935. sinn á afmæl­is­dag­inn

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Kven­fangi seg­ist hafa verið sviptur nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu

Heimur

Heimur

Ítalskur kokkur rek­inn eftir að hann neit­aði að setja ananas á pítsu

„Það er meira á bak við þessa sögu en pítsuálegg“
Heimur

Fyrr­ver­andi hers­höfð­ingjar hjálpa Palest­ínu­mönnum við ólífu­tínslu

Heimur

Lög­reglan þver­tekur fyrir að hafa teiknað typpi vilj­andi

Heimur

Var boðið kókaín í Hollywood aðeins 11 ára gömul

Heimur

Trump berst fyrir því að fá sögu­lega sak­fell­ingu fellda úr gildi

Heimur

„Pynt­ing­ar­klefi Zelenskys“ eða rúss­neskur áróður?