1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

5
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

10
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Til baka

Áríðandi bréf til ráðherra

Oscar
Oscar Andres Bocanegra Florez
Mynd: Aðsend

Við undirrituð Sonja Magnúsdóttir, Svavar Jóhannsson og fjölskylda óskum eftir því að Mennta- og barnamálaráðuneytið rannsaki aðild flóttateymis Hafnarfjarðar að barnaverndarmáli Oscars Anders Bocanegra Florez fæddur 19.apríl 2008

Flóttateymi Hafnarfjarðar braut lög og verkferla við meðferð máls hans og lét í léttu rúmi liggja að vernda Oscar þegar sannað var að drengurinn var beittur andlegu og líkamlegu ofbeldi af hendi föður síns. Þegar Oscar var fluttur úr landi með ofbeldisfullum föður í október sl. var opið barnaverndarmál til staðar vegna þess ofbeldis sem hann hafði mátt sæta af hálfu föður síns en flóttateymið gerði ekkert til að vernda Oscar. Neitar barnavernd í þeim efnum að taka ábyrgð a mistökum sínum.

Oscar lýtur nú umsjár barnaverndar Suðurnesjabæjar sem fylgdarlaust barn. Við förum því fram á það við mennta- og barnamálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að Oscar verði kyrrsettur í ljósi mjög viðkvæmrar stöðu hans. Mál hans er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum sem ber lagaleg skylda til að rannsaka málið og kanna aðstæður hans persónulega og í heimalandi.

Allir sérfræðingar BUGL og sérfræðilæknar af Landspítalanum gefa samróma álit í læknabréfi um að Oscari stafi bráð hætta af því að vera brottvísað og það stefni hans geðheilsu í hættu. Einnig erum við með greinargerð félagsráðgjafa með sérfræðiþekkingu í áfallastreitu, EMDR, sem hefur komið að hans máli síðustu 16 mánuði. Hún telur hann með

flókna áfallasögu en hér á Íslandi upplifi hann sig öruggan og frjálsan og eigi hér fjölskyldu og vini. Ljóst er að hann á sér enga framtíð ef hann verður fluttur á brott.

Lágmarkskröfur hvers barns eru að það upplifi sig öruggt innan veggja heimilisins og sé einnig öruggt innan veggja skólans sem það gengur í. Oscar upplifir sig ekki öruggan neins staðar eftir úrskurðinn sem kveður á um það að taka ekki umsókn hans til meðferðar og brottvísa honum til Kólumbíu. Oscar þráir heitt að geta verið heima hjá sér öruggur og geta farið í skólann sem hann elskar.

Oscar er með flókna áfallasögu sem kallar á aðkomu sérfræðinga. Hann er búinn að vera skelfingu lostinn eftir að hafa fengið þennan úrskurð og telur að líf sitt endi fljótlega. Hann sefur ekki, borðar ekki og líður hræðilega illa ásamt öðrum heimilismeðlimum þar á meðal börnum okkar hjóna sem óttast mjög um hann. Þau skilja ekki að það sé ekki verið að vernda barn sem beitt hefur verið miklu ofbeldi. Hann sér enga framtíð verði honum vísað úr landi þegar hans eina von og ósk er að búa hjá okkur um ókomna tíð.

Þetta barn hefur verið beitt miklu ofbeldi af nákomnum aðilum og fékk hugrekki til að standa upp og segja frá en hefur ítrekað verið beittur ofbeldi áfram í formi fordóma og aðgerðarleysis stofnana sem áttu að vernda hann.

Við erum tilbúin í samtal hvenær sem ráðherra hefur tækifæri til þess, en minnum á að hvern dag, jafnvel hverja klukkustund er Oscar í algjörri óvissu um líf sitt og framtíð enda liggur fyrir ákvörðun um brottvísun sem getur komið til framkvæmda hvenær sem er. Því skiptir máli að bregðast fljótt við þessu erindi.

Við óskum eftir staðfestingu á móttöku þessa erindis.

Með þökkum

Sonja Magnúsdóttir

Svavar Jóhannsson

Oscar Andres Bocanegra Florez

Sindri Arnar Svavarsson

Sylvía Svavarsdóttir

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu