
Draumar geta verið skrýtnir, skemmtilegir, óþægilegir og stundum svo furðulegir að erfitt er að átta sig á hvað undirmeðvitundin var eiginlega að reyna að segja manni. Á mánudaginn verður kafað ofan í heim draumanna á Borgarbókasafninu Spönginni.
Þar mun séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogssókn, fjalla um drauma og draumaráðningar á fyrsta fræðakaffi haustsins. Viðburðurinn fer fram mánudaginn 21. september frá klukkan 16.30 til 17.30.
Arna Ýrr þekkir draumana vel en hún hefur um árabil notað draumavinnu í sálgæslu og haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um drauma og túlkun þeirra.
Draumar hafa heillað fólk frá örófi alda og að sögn Örnu er það reynsla margra að draumatúlkun geti hjálpað fólki að takast á við ýmislegt sem kemur upp í lífinu, allt frá tilfinningum og hversdagslegum aðstæðum yfir í flókin úrlausnarefni.
„Mörg álíta að ef fólk gefur draumum sínum gaum, þá geti það eflt sköpunargáfu sína, aukið innsæi sitt og komið út sem sterkari og heilli manneskjur,“ segir Arna.
Þá skemmir ekki fyrir að draumar og draumaráðningar eru sívinsælt umræðuefni og því gæti verið gott að eiga nokkrar draumaskýringar uppi í erminni næst þegar furðulegar næturfarir ber á góma.
Aðgangur að fræðakaffinu er ókeypis og öll velkomin.
