
Ása Helga Hjörleifsdóttir
Mynd: Golden Globes
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ása Helga Hjörleifsdóttir hefur stofnað einkahlutafélagið Holy Lion ehf. í Reykjavík en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu
Ása Helga er eini stofnandi félagsins, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri þess. Birna Bjarnadóttir er varamaður í stjórn. Tilgangur Holy Lion er meðal annars handritagerð, leikstjórn og framleiðsla kvikmynda og myndlistarverka. Þá mun félagið sinna vöruhönnun og framleiðslu á keramikvörum auk lánastarfsemi, reksturs fasteigna og skyldrar starfsemi.
Ása Helga er þekkt fyrir störf sín í íslenskri kvikmyndagerð. Hún hefur meðal annars leikstýrt kvikmyndunum Svanurinn og Svar við bréfi Helgu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
