1
Fólk

Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ

2
Fólk

Íslenskur kastali til sölu

3
Fólk

Sigurbjörn Bárðarson stofnar fyrirtæki

4
Skoðun

Sekmeth

5
Innlent

Margrét nýtir góðgerðasamtök í eigin þágu

6
Innlent

„Þessi manneskja styður tilraunastarfsemi á börnum“

7
Innlent

Svaf á götu í miðbænum

8
Innlent

Stjórnvöld gagnrýna fréttamennsku RÚV

9
Innlent

Regnbogavottun Reykjavíkur nær nýjum áfanga

10
Innlent

Íslendingur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

Til baka

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

Húðlæknir leggur áherslu á að fólk leiti lausna í eldhúsinu

tamara-bellis-ZvPoZtY-0ng-unsplash
Mynd: Unsplash/Tamara Bellis

Rannsóknir sýna að árstíðabundin hármissir stafi oftast af næringarskorti fremur en veðurfari. Sérfræðingar á sviði næringar- og húðlækninga benda á að rétt samsett mataræði sé lykilatriði til að styrkja hársekkina innan frá og vinna gegn hárlosi, um þetta má fræðast í indverska Vogue.

Indverskt hár þykir einstaklega fallegt á heimsvísu vegna styrks, þykktar og glans, en leyndarmálið á bak við þessi gæði liggur í erfðum og menningarhefðum.

Indverjar búa yfir sterkum erfðafræðilegum þáttum eins og miklum þéttleika hársekkja sem gefur hárinu náttúrulega fyllingu og styrk. Og svo er mikil menningarhefð að huga vel að hárinu. Djúpstæðar umhirðuhefðir eins og að bera reglulega olíu í hársvörðinn er fastur liður í daglegu lífi sem nærir hárið frá rótum. Þá telja þeir mikilvægt að lágmarka alla efnameðhöndlun. Því minni notkun á sterkum gerviefnum og litun hjálpar til við að halda hárinu heilbrigðu og löngu til frambúðar.

Árstíðabundið hárlos

Árstíðabundið hárlos, sem margir upplifa sem tímabundið ástand tengt veðurfari, tengist eins og fyrr segir frekar næringarskorti og lífsstílsháttum samkvæmt nýjustu samantekt sérfræðinga. Algengustu orsakaþættirnir eru skortur á járni, próteini, sem og mikilvægum vítamínum og steinefnum á borð við D-vítamín, B12, sink og omega-3 fitusýrum.

Að sögn Abhishree Goyal, næringarfræðings, geta strangir megrunarkúrar, óreglulegur matartími og ofneysla kaffis truflað vaxtarskeið hársins og valdið því að hársekkir fari í dvala. Innan Ayurveda fræðanna er þessu jafnframt lýst sem ójafnvægi í hitabúskap líkamans, þar sem bólguvaldandi fæða og streita flýta fyrir þynningu og gránun hársins.

Húðlæknirinn dr. Kiran Sethi leggur áherslu á að fólk leiti lausna í eldhúsinu fremur en að treysta eingöngu á dýr hárserum. Þá tiltaka sérfræðingar átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi:

  • Amla (indversk gajaber): Rík af C-vítamíni og andoxunarefnum sem bæta járnupptöku.
  • Spínat: Uppspretta járns og fólats sem tryggir súrefnisflæði til hársvarðarins.
  • Spíraðar moong-baunir: Innihalda jurtaprótein og bíótín sem styrkja hárþræði frá rót.
  • Chía-fræ: Stútfull af omega-3 fitusýrum sem draga úr bólgu og raka hársvörðinn.
  • Valhnetur: Veita nauðsynleg steinefni og fitusýrur sem viðhalda heilbrigði hársekkja.
  • Kotasæla (paneer): Hágæða prótein og kalsíum sem styðja við keratínframleiðslu.
  • Lax: Öflug samsetning af D-vítamíni, próteini og omega-3 sem eykur þéttleika hárins.
  • Karrýlaufduft: Hefðbundið tól ríkt af A, C og E-vítamínum sem styrkir hársekki.

Samhliða bættu mataræði ráðleggja sérfræðingar reglulega streitustjórnun, góðan svefn, markvissa umhirðu hársvarðarins og reglulega inntöku D-vítamíns til að tryggja hámarksárangur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Reka 20 manns en högnuðust um tæpa níu milljarða
Peningar

Reka 20 manns en högnuðust um tæpa níu milljarða

Fundur með starfsfólki hófst síðdegis í dag
Eftirlýstur á Íslandi í rúma fjóra mánuði en finnst ekki
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúma fjóra mánuði en finnst ekki

Séra Sveinbjörg fer á Vestfirði en Hilmir fer austur
Landið

Séra Sveinbjörg fer á Vestfirði en Hilmir fer austur

Khan ákærður fyrir að nauðga fótafyrirsætum
Heimur

Khan ákærður fyrir að nauðga fótafyrirsætum

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands
Skoðun

Jón Ferdínand Estherarson

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands

Íslenskir trumpistar eygja byltingu
Innlent

Íslenskir trumpistar eygja byltingu

Þorsteinn Ólafsson er fallinn frá
Minning

Þorsteinn Ólafsson er fallinn frá

Brjálað afmælisstuð hjá Emmsjé Gauta
Myndband
Menning

Brjálað afmælisstuð hjá Emmsjé Gauta

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni
Innlent

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni

Sakar Samfylkinguna um hræsni
Pólitík

Sakar Samfylkinguna um hræsni

Segja andúð í garð ferðamanna á Tenerife hafa aukist
Heimur

Segja andúð í garð ferðamanna á Tenerife hafa aukist

Dæmdur í fangelsi fyrir að berja kött til dauða
Heimur

Dæmdur í fangelsi fyrir að berja kött til dauða

Kona á sextugsaldri ákærð fyrir að slá lögreglumann
Innlent

Kona á sextugsaldri ákærð fyrir að slá lögreglumann

Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi
Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

Húðlæknir leggur áherslu á að fólk leiti lausna í eldhúsinu
Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ
Myndir
Fólk

Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ

Íslenskur kastali til sölu
Myndir
Fólk

Íslenskur kastali til sölu

Landsliðsmaður Íslands er „Næs“
Fólk

Landsliðsmaður Íslands er „Næs“

Sigurbjörn Bárðarson stofnar fyrirtæki
Fólk

Sigurbjörn Bárðarson stofnar fyrirtæki

Gervigreindin umbyltir húðumhirðu
Fólk

Gervigreindin umbyltir húðumhirðu

Loka auglýsingu