1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

7
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

„Batman“ handtekinn á Kanarí

Handtekinn með hamar og peningakassa

Corralejo
Klæddist Batman-grímu við innbrot en fatavalið kom upp um hann
Mynd: Bengt Nyman

Lögreglan á spænsku eyjunni Fuerteventura hefur handtekið mann eftir stórfurðulegt innbrot í verslun í ferðamannabænum Corralejo. Þjófurinn reyndi að fela auðkenni sitt með því að klæðast grímu teiknimyndasöguhetjunnar Batman, en sú ákvörðun virtist fremur vinna gegn honum en með.

Innbrotið átti sér stað snemma morguns mánudaginn 12. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu braut maðurinn glerhurð á inngangi verslunarinnar og hafði á brott með sér peningakassa sem innihélt um 500 evrur í reiðufé, eða tæpar 75 þúsund íslenskar krónur. Við innbrotið olli hann jafnframt talsverðum skemmdum á húsnæðinu, sem metnar eru á tæpar 112 þúsund krónur (€750).

Batman á öryggismyndavélum

Myndefni úr öryggismyndavélum verslunarinnar reyndist lögreglunni lykillinn að lausn málsins. Á upptökunum sást innbrotsþjófurinn greinilega klæddur Batman-grímu. Þótt andlitið væri falið þá vakti fatnaður hans mikla athygli rannsakenda, en maðurinn var í okurgulum (gulleit hálfbrúnum) buxum, svartri hettupeysu og í svörtum stígvélum.

Lögreglumenn áttu ekki í miklum vandræðum með að staðsetja mann í bænum sem klæddist nákvæmlega eins fötum og sást til á upptökunum.

Vísaði lögreglunni á felustaðinn

Eftir að maðurinn var handtekinn viðurkenndi hann brotið og leiddi lögregluna á staðinn þar sem hann hafði falið Batman-grímuna og hamarinn sem hann notaði til að brjóta glerhurðina.

Lögreglunni tókst einnig að endurheimta peningakassann sjálfan og rúmlega helminginn af stolna fénu, eða um 253 evrur. Maðurinn hefur nú verið kærður fyrir innbrot og var fluttur fyrir dómstól í héraðshöfuðborginni Puerto del Rosario þar sem málið verður tekið fyrir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu