Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Besta örvunin fyrir heilann er ekki sú sem þú heldur

Ráð tauga­læknis til að vernda heilann

Taugalæknir deilir fimm lykilatriðum fyrir öfluga heilaheilsu
Tauga­læknir deilir fimm lyk­il­at­riðum fyrir öfl­uga heila­heilsu Mynd: Unsplash/Vitaly Gariev

Hvenær er besti tíminn til að byrja að huga að heila­heilsunni? Svarið er einfalt: Núna, óháð því á hvaða aldri þú ert.

Dr. Douglas Scharre, tauga­læknir við Ohio State College of Medicine, bendir á að á miðjum aldri eða yngri sé full­kominn tíma­punktur til að hefjast handa. Með því að styrkja heilann snemma byggjum við upp öflugan vitrænan forða, nokkurs konar varnar­skel sem seinkar minnis­glöpum og verndar okkur gegn sjúkdómum á borð við Alzheimer. Nýjar rann­sóknir sýna að 60% fólks vilja forgangs­raða heila­heilsu sinni fyrr á lífs­leiðinni en margir hreinlega vita ekki hvernig.

Hér deilir Dr. Scharre lykil­atriðunum sem allir ættu að þekkja.

Leyndarmálið á bak við öflugasta heilaforðann

„Notaðu það eða misstu það,“ segir dr. Scharre. Heilinn þarf stöðuga örvun. Ef við ræktum ekki tengslin á milli heila­frumnanna eyðir heilinn þeim einfald­lega hægt og rólega.

En hvaða aðferð ætli sé best til að halda heilanum í formi? Margir halda að svarið liggi í kross­gátum, sudoku eða lestri. Þótt það séu prýðilegar aðferðir þá er einn óvæntur sigurvegari sem trompar þær allar og það er félags­mótun.

Þegar þú átt í samskiptum við aðra fer fram flókin og leiftur­snögg vinnsla í heilanum. Þú þarft að:

  • Lesa í svip­brigði og túlka viðbrögð.
  • Hlusta, meðtaka og greina upplýsingar á auga­bragði.
  • Kafa djúpt í eigið minni til að sækja sögur og svör.
  • Fella dóma og bregðast við í rauntíma.

Samskipti eru í raun full­kominn alhliða líkams­ræktar­dagur fyrir heilann.

Virk vs. óvirk örvun

Það skiptir máli hvernig við verjum tímanum. Dr. Scharre skiptir örvun í tvo hópa:

  • Virk örvun (Heila-boosterinn): Samskipti, spil, tónlist, list­sköpun, hreyfing og að læra ný tungumál. Allt þetta knýr heilann til að dafna.
  • Óvirk örvun (Heila-þjófurinn): Að sökkva sér of lengi ofan í sjónvarps­gláp eða stans­laust skrun á samfélags­miðlum. Þessi iðja hreinlega sviptir heilann þeirri vinnu sem hann þarf til að halda sér heil­brigðum og getur beinlínis verið skaðleg til lengdar.

5 ráð fyrir betri heilaheilsu

Auk þess að halda heilanum virkum mælir Dr. Scharre með fimm einföldum lífsstíls­þáttum:

  1. Settu svefninn í forgang: Djúpur svefn er eins og hreinsi­tæki fyrir heilann, hann skolar burt eitur­efnum sem safnast upp yfir daginn. Slökktu á skjáum og tryggðu góða svefn­rútínu.
  2. Gættu að efna­skiptunum: Hátt kólesteról, sykursýki og hár blóð­þrýstingur geta stíflað æðarnar sem flytja súrefni til heilans. Meðhöndlaðu þessa þætti í samráði við lækni.
  3. Verndaðu geðheilsuna: Lang­varandi streita og þunglyndi geta rofið mikilvæg tengsl í heilanum og gert einbeitingu og ákvarðana­töku erfiðari.
  4. Borðaðu fyrir heilann: Heilinn þarfnast vítamína sem hann getur ekki framleitt sjálfur. Miðjarðar­hafs­mataræðið, ríkt af ávöxtum, grænmeti og jurta­olíum, en snautt af rauðu kjöti og unnum sykri, er kjörið heilsu­fóður.
  5. Hreyfðu þig fjöl­breytt: Ekki bara hjóla eða hlaupa. Besta formúlan er blanda af þolþjálfun, styrktaræfingum, liðleika og jafnvægi. Ólíkar æfingar virkja mismun­andi svæði heilans og byggja upp dýrmætan heila­forða.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“