1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

7
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

10
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Til baka

Björn tók barn hálstaki í sundlaug í Kópavogi

Hann neitaði sök fyrir dómi

Salalaug2
Salalaug séð að utanverðu
Mynd: Skjáskot/Ja.is

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Björn Harðarson í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn 13 ára dreng í Salalaug í Kópavogi. Dómurinn taldi jafnframt sannað að háttsemi hans bryti gegn barnaverndarlögum.

Samkvæmt ákæru átti atvikið sér stað 10. október 2023 þegar Björn gekk að drengnum í heitum potti, greip um háls hans með annarri hendi og ýtti honum aftur á bak þannig að háls hans sveigðist aftur og hann átti erfitt með að anda. Áður höfðu drengurinn og félagar hans verið með hávaða í gufubaði sundlaugarinnar, sem leiddi til orðaskipta milli þeirra og Björns.

Björn neitaði sök fyrir dómi. Hann hélt því fram að hann hefði aðeins ýtt lauslega við drengnum eftir að hafa orðið fyrir sífelldu áreiti af hans hálfu og hafnaði því að hafa tekið hann hálstaki eða beitt ofbeldi.

Dómurinn féllst ekki á þá skýringu. Þar var vísað til samhljóða framburðar brotaþolans, tveggja vina hans og starfsmanns Salalaugar, auk upptaka úr eftirlitsmyndavélum sundlaugarinnar. Að mati dómsins sýndu upptökurnar glögglega að Björn tók drenginn um hálsinn og ýtti honum aftur á bak. Framburður drengsins var talinn stöðugur, trúverðugur og studdur öðrum gögnum málsins, en frásögn Björns þótti hvorki fá stoð í vitnisburði né myndbandsupptökum.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að drengurinn hlaut ekki varanlegt líkamstjón. Á hinn bóginn þótti alvarlegt að um hefði verið að ræða árás fullorðins manns á 13 ára barn í almenningssundlaug. Einnig kom fram að verulegur og óútskýrður dráttur hefði orðið á rannsókn málsins, sem Birni yrði ekki kennt um. Refsingin var því ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað til tveggja ára, haldi hann almennu skilorði.

Þá var Birni gert að greiða föður drengsins, fyrir hönd sonar síns, 300 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta og dráttarvaxta. Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega 1,3 milljónir króna í sakarkostnað, þar á meðal málsvarnarlaun verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþolans.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu