
Bandaríski rithöfundurinn Kris Bryant mun lesa úr verkum sínum á Borgarbókasafninu Grófinni föstudaginn 28. ágúst. Þar mun hún jafnframt ræða sköpunar- og útgáfuferil sinn við gesti en þetta kemur fram í tilkynningu frá safninu.
Bryant mun sama dag færa Borgarbókasafninu úrval eigin verka að gjöf og verður bókagjöfin til sýnis í Grófinni.
Bryant er margverðlaunaður rithöfundur og hefur gefið út 23 saffísk skáldverk auk fjölda smásagna hjá Bold Strokes Books Publishing, einni stærstu sjálfstæðu hinsegin bókaútgáfu Bandaríkjanna. Hugtakið saffískar bókmenntir er kennt við forngrísku skáldkonuna Saffó frá Lesbos og vísar meðal annars til bókmennta sem fjalla um ástir og sambönd kvenna.
Bryant hefur hlotið Goldie-verðlaun Golden Crown Literary Society fyrir fimm bóka sinna. Hún hefur einnig komist í úrslit Foreword Indies-verðlaunanna og Lambda Literary-verðlaunanna. Bókin Forget-Me-Not var auk þess valin á „Over the Rainbow“-bókalista American Library Association.
Viðburðurinn hefst klukkan 17 föstudaginn 28. ágúst og er aðgangur ókeypis.
