1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

9
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

10
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Til baka

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Söngvarinn hefur orðið fyrir gríðarlegri gagnrýni eftir að hann gaf út lag til stuðnings Ísrael.

Boy George
Boy GeorgePopparinn hefur verið vinsælli
Mynd: Instagram

Breski söngvarinn Boy George hefur dregið sig úr sýningum á söngleiknum Jesus Christ Superstar í West End í Lundúnum eftir harða gagnrýni sem fylgdi útgáfu nýs lags þar sem hann lýsir yfir stuðningi við Ísrael.

Fyrr í vikunni gaf fyrrverandi söngvari Culture Club út lagið We Will Dance Again. Í laginu gagnrýnir hann meðal annars þá sem hafa lýst yfir stuðningi við Palestínu og segir í upphafslínu þess: „Þú segir þjóðarmorð, ég segi stríð. Þegar ráðist er á þig, þá er herinn til þess.“

Síðar í laginu viðurkennir hann að hernaðaraðgerðir Ísraels hafi orðið „ljótar“, en segir jafnframt að þær skýrist af því að „þið viljið drepa hvern einasta okkar“, með vísan til gyðinga sem búa í Ísrael.

Útgáfa lagsins vakti hörð viðbrögð og í kjölfarið tilkynnti umboðsmaður Boy George, Paul Kemsley, að söngvarinn myndi ekki koma fram í Jesus Christ Superstar eins og til stóð.

Boy George átti að fara með hlutverk Heródesar konungs frá 3. til 15. ágúst.

„Ákvörðunin var tekin af fyllstu virðingu fyrir framleiðendum, listræna teyminu og öllum sem koma að sýningunni,“ skrifaði Kemsley á Instagram.

Hann sagði Boy George aldrei hafa óttast að standa með eigin sannfæringu en að það væri jafnframt hlutverk sitt að taka ákvarðanir sem væru bæði listamanninum og öðrum fyrir bestu.

„Í þessu tilviki taldi ég rétt að stíga til hliðar þannig að athyglin beindist áfram að sýningunni og að allir gætu haldið áfram í gagnkvæmri virðingu og góðum anda,“ sagði hann.

Kemsley bað jafnframt aðdáendur afsökunar sem höfðu keypt miða sérstaklega til að sjá Boy George á sviði.

Í laginu gagnrýnir Boy George einnig tónlistarmenn á borð við Kneecap, Stormzy og Clairo fyrir stuðning sinn við Palestínu og sakar þá um að fylgja straumnum.

Hann vísar einnig til árásar Hamas á Nova-tónlistarhátíðina 7. október 2023 og syngur meðal annars að fólk hafi þagað um þá árás og fordæmt gyðinga með „sértæku minni“ og áróðri sem hafi breiðst út á internetinu.

Laginu lýkur á orðunum:

„Treystu mér, við munum dansa aftur … og þá verður ekkert stríð. En ef þú ert enn í vafa, þá stend ég með gyðingum. Ég tel mig ekki hugrakkan, ég þarf bara að haga mér eins og manneskja.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu