Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

„Ég hafna þeirri full­yrðingu sem felst í spurningunni“

Sanae Takaichi og Anthony Albanese
Sanae Takaichi og Anthony Albanese Mynd: Wikipedia

Anthony Albanese, forsætis­ráðherra Ástralíu, hafnaði á þriðjudag kröfum um að biðjast afsökunar vegna umdeildra ummæla um gjöf sem hann fékk frá Sanae Takaichi, forsætis­ráðherra Japans.

Ummælin féllu í viðtali við hlað­varpið Bush Deep í síðasta mánuði. Þar sagði Albanese frá því að Takaichi hefði fært honum japanska melónu að gjöf þegar hún heimsótti Ástralíu í maí. Slíkar melónur þykja lúxusvara í Japan og geta kostað jafnvirði tuga þúsunda íslenskra króna.

Albanese lýsti gjöfinni sem „undarlegri“ og þegar þátta­stjórn­andinn Nikki Osborne spurði hvort Takaichi hefði smyglað ávextinum í gegnum tollinn lyfti forsætis­ráðherrann höndunum og sagði að hún hefði komið með „nokkrar melónur“. Osborne svaraði í kjölfarið með vísun í leik­konuna Pamelu Anderson.

Stjórnar­andstaðan í Ástralíu hefur gagnrýnt ummælin harðlega og kallað eftir afsökunar­beiðni. Albanese hafnaði þeirri kröfu á ástralska þinginu á þriðjudag.

„Ég hafna þeirri full­yrðingu sem felst í spurningunni,“ sagði Albanese þegar hann var spurður hvort hann hygðist biðjast afsökunar á óvirðulegri framkomu.

Hann sagði Takaichi vera bæði vin Ástralíu og persónu­legan vin sinn.

Penny Wong, utan­ríkis­ráðherra Ástralíu, kom forsætis­ráðherranum einnig til varnar og sagði að ummælin hefðu ekki verið ætluð sem móðgun.

Albanese hafði áður sætt gagnrýni vegna annars ummælis í sama viðtali, þar sem hann sagðist myndu „sofa hjá“ áströlsku söng­konunni Kylie Minogue. Hann baðst síðar afsökunar á þeim ummælum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs