Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns

„Ég mun sakna þín, sonur minn“

Brian og RJ
Brian og RJ Sjón­varps­feðgarnir á góðir stundu Mynd: Instagram

Leikarinn Bryan Cranston er harmi sleginn eftir andlát RJ Mitte, sem lék son hans í sjónvarps­þáttunum Breaking Bad. Cranston segist vera í mikilli örvæntingu vegna fráfalls leikarans.

Cranston birti mynd af þeim saman á samfélags­miðlum og skrifaði einlæga kveðju.

„Ég er í mikilli örvæntingu þegar ég skrifa þetta í kvöld. RJ Mitte, elsku sonur minn í Breaking Bad, er látinn,“ skrifaði hann.

Cranston rifjaði upp þegar hann kynntist Mitte, sem þá var aðeins 14 ára gamall. Hann hrósaði honum fyrir þraut­seigju og einbeitni, ekki síst í ljósi þess að Mitte var með heila­lömun. Hann lýsti jafnframt stolti yfir því að hafa fylgst með honum vaxa úr grasi á tökustað þáttanna og verða að hæfileika­ríkum leikara og talsmanni réttinda fatlaðs fólks.

„Hann var ein af stjörnum vinsælla sjónvarps­þátta, en var samt bara krakki,“ skrifaði Cranston.

Leikarinn sagði að þeir hefðu verið í skilaboða­samskiptum fyrir aðeins nokkrum vikum og rætt um að hittast í hádegismat. Hann væri miður sín yfir því að þau áform yrðu aldrei að veruleika.

„Ég veit að ég elskaði hann … Ég mun sakna þín, sonur minn,“ skrifaði Cranston.

Mitte, sem var þekktastur fyrir hlutverk Walter White yngri í vinsælu þátta­röðinni á sjónvarps­stöðinni AMC, lést 34 ára að aldri, samkvæmt frétt TMZ. Heimildar­menn miðilsins segja að hann hafi svipt sig lífi. Yfirvöld rannsaka andlátið enn.

Mitte lét einnig til sín taka utan leik­listarinnar og barðist fyrir auknum réttindum fatlaðs fólks í skemmtana­iðnaðinum. Hann nýtti frægð sína til að vekja athygli á mikilvægi þess að fatlað fólk fengi aukið rými og betri fulltrúa í kvik­myndum og sjónvarpi.

Hlaðvarps­stjórn­andinn Joe Vulpis, sem hitti Mitte nokkrum vikum fyrir andlát hans, sagði við TMZ að leikarinn hefði verið „afar jákvæður“ og einn vingjarnlegasti og einlægasti maður sem hann hefði átt samtal við.

Cranston lauk kveðju sinni með því að hvetja fólk sem glímir við sjálfsvígs­hugsanir til að leita sér hjálpar hjá bandarísku stuðnings­línunni 988 Suicide & Crisis Lifeline.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs