1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

9
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

10
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Til baka

Burrito orðið að óvæntu deilumáli innan Repúblikanaflokksins

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoðanaskiptum meðal íhaldsmanna

Donald Trump
Donald Trump er forseti Bandaríkjanna
Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Verð á burrito hefur orðið að óvæntu hitamáli innan Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, þar sem vaxandi áhyggjur eru af því að hátt verðlag og framfærslukostnaður geti reynst flokknum dýrkeyptur í þingkosningunum í nóvember.

Umræðan hófst eftir að Andrew Kolvet, talsmaður íhaldssömu ungmennasamtakanna Turning Point USA, birti færslu á X þar sem hann vitnaði í háskólanema innan samtakanna sem sagði að burrito ætti ekki að kosta 20 Bandaríkjadali. Kolvet sagði að þótt hluta verðhækkana mætti rekja til verðbólgu í kjölfar Covid-faraldursins og forsetatíðar Joe Biden væri upplifun almennings sú sama: nauðsynjavörur væru einfaldlega orðnar of dýrar.

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoðanaskiptum meðal íhaldsmanna. Fox News hefur jafnvel lýst deilunum sem „borgarastyrjöld“ innan flokksins.

Dan Crenshaw, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, gagnrýndi kvartanir ungs fólks og sagði námsmenn frekar eiga að fá sér vinnu, borða ódýran mat og búa með fleirum líkt og fyrri kynslóðir hefðu þurft að gera.

Marc Thiessen, fyrrverandi ráðgjafi George W. Bush Bandaríkjaforseta og nú dálkahöfundur, tók í svipaðan streng. Hann sagðist sjálfur hafa lifað á núðlum eftir útskrift og unnið hörðum höndum í stað þess að kvarta undan verðlagi.

JD Vance varaforseti svaraði Thiessen hins vegar með persónulegu skoti og sagði augljóst af líkamsvexti hans að hann hefði „aldrei sleppt burrito“.

Fleiri á hægri vængnum hafa varað við því að gera lítið úr áhyggjum kjósenda. Angela Morabito, talsmaður Defense of Freedom Institute, sagði að ef svar hægrimanna við framfærsluvandanum væri að segja fólki að borða verr myndu Repúblikanar tapa kosningunum í nóvember og eiga það skilið.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur á sama tíma haldið því fram að verðbólga sé á niðurleið og hafnað því að tollastefna hans hafi ýtt undir verðhækkanir. Samkvæmt opinberum tölum fór verðbólga í 4,2 prósent í maí en lækkaði í 3,5 prósent í júní.

Framfærslukostnaður er áfram ofarlega í huga bandarískra kjósenda. Í nýlegri könnun Marquette-háskóla nefndu 35 prósent svarenda hann sem helsta áhyggjuefni sitt, töluvert fleiri en nefndu stríðið í Íran.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu