
Breskur karlmaður á sjötugsaldri hefur játað að hafa byrlað eiginkonu sinni lyf og nauðgað henni ítrekað á um tveggja áratuga tímabili. Maðurinn játaði brotin fyrir dómi í Manchester á Englandi á mánudag.
Ekki er heimilt að nafngreina manninn þar sem það gæti leitt til þess að eiginkona hans, sem nýtur nafnleyndar sem þolandi kynferðisbrota, yrði borin kennsl á.
Maðurinn hafði áður játað önnur kynferðisbrot gegn eiginkonu sinni en á mánudag játaði hann samtals 60 brot sem ná aftur til ársins 2004. Meðal þeirra er að hafa gefið konunni efni í þeim tilgangi að slæva hana eða gera hana ófæra um að veita mótspyrnu.
Til stóð að maðurinn sæti réttarhöldum ásamt tólf öðrum mönnum sem sakaðir eru um að hafa tekið þátt í samsæri um að misnota konuna kynferðislega á meðan hún var meðvitundarlaus. Mennirnir tólf neita sök. Þrettándi maðurinn hafði áður játað að hafa tekið þátt í samsæri um að byrla konunni og nauðga henni.
Meðal sakborninganna eru sjúkraflutningamaður og fyrrverandi knattspyrnuþjálfari. Mennirnir eru á aldrinum 28 til 73 ára og er gert ráð fyrir að réttarhöld yfir þeim hefjist í Manchester á næstu vikum.
Málið er eitt nokkurra alvarlegra kynferðisbrotamála í Bretlandi að undanförnu þar sem grunur leikur á að þolendum hafi verið byrlað áður en þeir voru misnotaðir.
Alþjóðleg athygli á slíkum brotum jókst verulega í kjölfar máls Frakkans Dominique Pelicot. Hann var sakfelldur fyrir að hafa byrlað þáverandi eiginkonu sinni, Gisèle Pelicot, og nauðgað henni auk þess að fá fjölda ókunnugra karla til að misnota hana á meðan hún var meðvitundarlaus.