Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Xi Jinping, leiðtogi Kína
Xi Jinping, leið­togi Kína Með honum er Halla Tóm­as­dóttir Mynd: Ken Ishii / POOL / AFP

Kínverski lista­maðurinn Gao Zhen hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur og píslar­votta“ með lista­verkum sínum. Mann­réttinda­samtök greindu frá dómnum á þriðjudag.

Gao, sem er sjötugur, varð þekktur ásamt bróður sínum Gao Qiang á fyrsta áratug aldarinnar fyrir verk sem fjölluðu um viðkvæm málefni í kínverskri sögu, meðal annars menningar­byltinguna, mótmælin á Torgi hins himneska friðar og arfleifð Maó Zedong.

Meðal þekktustu verka þeirra er högg­myndin Mao's Guilt, þar sem Maó er sýndur krjúpandi. Í öðru verki, Execution of Christ, miða nokkrar brons­styttur af Maó rifflum að Jesú Kristi.

Gao flutti til Banda­ríkjanna árið 2022 en var hand­tekinn í vinnu­stofu sinni í útjaðri Peking í ágúst 2024 þegar hann var í heimsókn í Kína. Hann var ákærður í júní í fyrra fyrir að hafa móðgað hetjur og píslar­votta.

Samtökin Chinese Human Rights Defenders greindu AFP frá því að Gao hefði á þriðjudag verið dæmdur í þriggja ára fangelsi við dómstól í Sanhe í Hebei-héraði. Um er að ræða þyngstu refsingu sem heimilt er að dæma fyrir brotið.

Mann­réttinda­samtök segja kínversk stjórn­völd hafa beitt lögum frá árinu 2021 aftur­virkt vegna lista­verka sem Gao skapaði á árunum 2005 til 2009.

Sarah Brooks, yfirmaður Kínamála hjá Amnesty International, gagnrýndi dóminn og sagði hann sýna vilja stjórn­valda til að fæla aðra frá sjálf­stæðri listrænni tjáningu. Enginn lista­maður ætti að sæta refsingu fyrir verk sem ögruðu opinberri sögu­skoðun eða hvettu til gagn­rýninnar umræðu um söguna.

Gert er ráð fyrir að Gao ljúki afplánun í ágúst á næsta ári, þar sem gæslu­varðhalds­tími hans reiknast með. Hann hyggst áfrýja bæði sakfellingunni og refsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs