Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Dóttir Diane Keaton minnist móður sinnar ári eftir andlátið

„Á einhvern hátt líður mér eins og þetta hafi gerst í gær og fyrir heilli eilífð í senn“

Duke, Diane og Dexter
Duke, Diane og Dexter Ár er liðin frá and­láti Diane Keaton Mynd: EMMA MCINTYRE / GETTY IMAGES VIA AFP

Dexter Keaton White minnist móður sinnar, leik­konunnar Diane Keaton, með tilfinninga­þrunginni kveðju á fyrsta ári frá andláti hennar. Keaton, sem hlaut Óskars­verðlaun á ferli sínum, lést 79 ára að aldri.

„Eitt ár án þín, mamma,“ skrifaði Dexter í Instagram-færslu 10. október. Með færslunni birti hún svart­hvíta mynd af þeim mæðgum frá fyrri tíð.

„Á einhvern hátt líður mér eins og þetta hafi gerst í gær og fyrir heilli eilífð í senn,“ skrifaði Dexter.

Hin þrítuga Dexter á enn erfitt með að sætta sig við að móðir hennar sé ekki lengur til staðar.

„Ég er enn að reyna að venjast heimi þar sem ég get ekki hringt í þig, fengið faðmlag frá þér eða farið í ævintýra­ferðir með þér,“ skrifaði hún.

Hún bætti við að það væru hversdags­legu augna­blikin sem minntu hana hvað mest á hversu mikið hún óskaði þess að móðir hennar væri enn á lífi.

Í lok kveðjunnar skrifaði hún: „Ég elska þig og sakna þín. Alltaf.“

Birti mynd frá brúðkaupinu

Samhliða minningar­kveðjunni rifjaði Dexter upp fallega stund með móður sinni og birti mynd af þeim frá brúðkaupi sínu og Jordan White árið 2021.

Á myndinni klæðist Dexter hvítum brúðar­kjól en Diane er með sinn einkennandi hatt og sólgleraugu og klæðist buxna­dragt. Þær brosa hvor til annarrar og horfast í augu.

Kveðjan birtist nákvæmlega ári eftir að Diane Keaton lést, 79 ára að aldri, eftir að hafa glímt við lungna­bólgu.

Frá andláti móður sinnar hefur Dexter ítrekað minnst hennar á samfélags­miðlum. Meðal annars birti hún færslu á fyrsta mæðra­deginum eftir andlátið.

„Fyrsti mæðra­dagurinn án þín,“ skrifaði hún í Instagram-færslu 10. maí. „Ég sakna þín meira en orð fá lýst. Ég sakna raddarinnar þinnar, faðm­laganna, nærverunnar og alls þess sem gerði heimilið að heimili.“

Diane var sátt við að vera einstæð móðir

Diane Keaton varð móðir seint á ævinni og talaði reglulega um ákvörðun sína um að ala börnin upp sem einstæð móðir. Diane ættleiddi Dexter árið 1996 og son sinn, Duke, árið 2001.

Í viðtali við Ladies’ Home Journal árið 2008 lýsti hún því hvernig hún hefði tekið ákvörðunina.

„Móður­hlutverkið var ekki einhver óviðráðanleg þrá sem ég gat ekki staðist,“ sagði hún. „Þetta var frekar hugmynd sem ég hafði velt fyrir mér í mjög langan tíma. Svo lét ég slag standa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs