1
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

2
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

3
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

4
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

5
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

6
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

7
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

8
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

9
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

10
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

Til baka

Dynomatic og Bjössi Basti sameina krafta sína í nýju lagi

Samstarfið byggir á áratuga vináttu og fjölbreyttri reynslu þeirra úr íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi.

Magnús og Björn
ÆskuvinirnirGlænýtt lag hefur litið dagsins ljós.
Mynd: Aðsend

Tónlistarverkefnið Dynomatic hefur sent frá sér nýju smáskífuna Mission Control, ásamt tónlistarmyndbandi. Lagið markar fyrsta samstarf Dynomatic og Silverpink, en þar sameina krafta sína æskuvinirnir Magnús Jónsson og Björn Helgi Baldvinsson, betur þekktur sem Bjössi Basti.

Þótt þeir hafi þekkst frá unglingsárum er þetta í fyrsta sinn sem þeir vinna saman að tónlist. Samkvæmt tilkynningu byggir samstarfið á áratuga vináttu og fjölbreyttri reynslu þeirra úr íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi.

Dynomatic vakti fyrst athygli árið 2021 með laginu Miracle, sem Daníel Ágúst söng, og fylgdi því eftir ári síðar með smáskífunni Superficial. Með Mission Control heldur verkefnið áfram að þróa sinn hljóðheim þar sem nútímalegt synth-pop mætir áhrifum frá klassísku new wave og rokki.

Magnús Jónsson hefur komið víða við á ferli sínum og starfað meðal annars með hljómsveitunum Silfurtónum, Dá, Mickey Dean and the Wonderfulz, Blake, BB & Blake og GusGus.

Bjössi Basti er hins vegar þekktastur sem söngvari pönkhljómsveitarinnar Bleiku Bastanna og stofnandi útvarpsstöðvarinnar X-977. Hann flutti til Los Angeles árið 1994 þar sem hann starfaði bæði við tónlist og kvikmyndagerð og var meðal annars í hljómsveitunum Lux, Skin, Cybjorn og Bjorn Means Bear.

Samkvæmt tilkynningu sameinar Mission Control melódíska nálgun, kraftmikla takta og áhrif úr rafpoppi, rokki og kvikmyndatónlist, um leið og lagið sækir innblástur til synth-tónlistar níunda áratugarins.

Smáskífan er nú aðgengileg á öllum helstu streymisveitum og tónlistarmyndbandið hefur jafnframt verið gefið út.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Brjóstakrabbamein flugfreyju viðurkennt sem sjúkdómur vegna atvinnu
Heimur

Brjóstakrabbamein flugfreyju viðurkennt sem sjúkdómur vegna atvinnu

Tímamótadómur í Frakklandi
Að minnsta kosti 50 manns slösuðust í flugeldaslysi
Myndband
Heimur

Að minnsta kosti 50 manns slösuðust í flugeldaslysi

Sýknaður um að brjóta kynferðislega á barni eftir ball
Innlent

Sýknaður um að brjóta kynferðislega á barni eftir ball

Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn?
Könnun
Pólitík

Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn?

Breyttir tímar á vinnumarkaði með aukinni eftirspurn eftir eldra fólki
Heimur

Breyttir tímar á vinnumarkaði með aukinni eftirspurn eftir eldra fólki

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum
Innlent

Matvælastofnun varar við chia fræjum með skordýrum

Lögreglan varar við svikahröppum
Innlent

Lögreglan varar við svikahröppum

Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa
Heimur

Tengja þyngdarstjórnunarlyf við metfækkun glæpa

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Svandís komin með nýtt starf
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Menning

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum
Menning

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum

Hlynur og Anton tilnefndir í fjórða sinn
Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi
Menning

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi

DIMMA búin að finna eftirmann Stebba Jak
Menning

DIMMA búin að finna eftirmann Stebba Jak

Frá Kópavogi til Síerra Leóne
Menning

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“
Viðtal
Menning

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“

Loka auglýsingu