
Fatahönnuðurinn Tinna Rún Jónasdóttir telur að feldir, áberandi yfirhafnir og persónulegur klæðaburður verði áberandi í tískunni hér á landi í haust og vetur en Mannlíf hafði samband við hana til að spyrja hana út í tísku næstu mánuða.
Hún segir jafnframt að einfaldari og svokallaður „basic“ klæðaburður kunni að vera á undanhaldi.
Tinna segir feldinn vera að sækja verulega í sig veðrið og telur að hann muni sjást í ýmsum myndum á næstu mánuðum, meðal annars í yfirhöfnum, húfum og töskum.
„Allir eru að prófa sig áfram í eigin tísku og ég er að fíla það. Tískan er orðin miklu meira persónulegri núna,“ segir Tinna.
Hún telur að þegar kólna taki í veðri verði yfirhafnir mikilvæg leið fyrir fólk til að tjá persónulegan stíl sinn. Í stað hefðbundinna og látlausra úlpa eigi skemmtilegar og áberandi yfirhafnir eftir að verða meira áberandi.
„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu. Það þarf aldrei að vera neitt tilefni til þess að klæða sig upp eða vera í fínum og flottum flíkum,“ segir hún.
Vill sjá meiri lit og áræðni
Tinna telur að svokallaður „basic“ stíll sé að einhverju leyti á útleið. Hún segir þó nauðsynlegt að eiga einfaldar grunnflíkur en hvetur fólk til að para þær saman við meira áberandi fatnað.
Hún segist sérstaklega vilja sjá meiri lit í íslenskri vetrartísku.
„Ég vil sjá meira af litríkum flíkum, helst bara allan regnbogann. Það væri svo æðislegt í þessum blessaða kulda og allri þessari dimmu,“ segir Tinna.
Að hennar mati mætti fólk jafnframt taka meiri áhættu í klæðaburði. Flíkur og fylgihlutir þurfi ekki alltaf að passa saman með hefðbundnum hætti og óvæntar samsetningar geti gefið klæðnaðinum meiri karakter.
Notaðar flíkur í uppáhaldi
Endurnýting skipar stóran sess í sýn Tinnu á tísku og endurspeglast það í fatahönnun hennar hjá LÖKKŸ. Þar leggur hún áherslu á að nýta eldri og notaðar flíkur og umbreyta þeim í einstök eintök.
Sjálf segist hún helst versla í Góða hirðinum og verslunum Rauða krossins.
„Það er svo miklu skemmtilegra að labba inn í búð og þú veist ekkert hvað bíður þín. Það er hægt að finna svo áhugaverða og skrýtna hluti þar,“ segir hún.
Tinna segist nú kaupa tiltölulega lítið af fötum enda eigi hún mikið fyrir. Þegar hún kaupi sér fatnað verði notaðar flíkur þó oftast fyrir valinu. Það sem heilli við slíkan fatnað sé meðal annars möguleikinn á að breyta flíkunum og gefa þeim nýtt líf.
„Tíska fyrir mér snýst ekkert endilega um það nýjasta heldur frekar að finna skapandi leiðir til þess að segja hver maður er án þess að segja neitt,“ segir Tinna.
