Jed York, eigandi NFL-liðsins San Francisco 49ers, var handtekinn í Ohio á sunnudag vegna gruns um vændiskaup. Málið er nú til skoðunar hjá NFL-deildinni samkvæmt bandaríska slúðurmiðlinum TMZ.
York var handtekinn í East Palestine. Hann var látinn laus gegn 5.000 dala tryggingu, jafnvirði um 600 þúsund króna.
Upphaflega var York sakaður um að hafa keypt vændi en saksóknarar breyttu síðar ákærunni í óspektir, sem teljast minniháttar brot. York játaði hvorki né neitaði sök en samþykkti niðurstöðu málsins. Hann gerði slíkt hið sama vegna ákæru um vörslu muna sem tengdust brotinu.
Dómari dæmdi York í eins dags fangelsi fyrir hvort brot.
Samkvæmt WKBN var farsíma York skilað til hans en 160 dalir, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, gerðir upptækir og renna þeir til sérsveitar sem vinnur gegn mansali á svæðinu.
NFL-deildin hefur staðfest að málið verði tekið til skoðunar samkvæmt reglum deildarinnar um persónulega háttsemi.
York tók við sem forseti San Francisco 49ers árið 2008 og er meirihlutaeigandi félagsins.
TMZ greinir jafnframt frá því að York hafi sótt um skilnað þremur mánuðum áður en hann var handtekinn.

